HD Sonic Zip Vöðlupakki I

HD Sonic Zip vöðlupakki I inniheldur vandaðar renndar öndunarvöðlur frá Guideline og Alta NGx, Devils Canyon eða Darkhorse vöðluskóna. Vöðlurnar eru framleiddar úr fjögurra laga efni fyrir neðan mitti en þriggja laga efni ofan mittis.

113.900kr.

HD Sonic Zip Vöðlur

Devils Canyon Vöðluskór

Darkhorse Vöðluskór

Alta NGx Vibram Vöðluskór

Insufficient stock

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

HD Sonic Zip vöðlupakki I inniheldur vandaðar öndunarvöðlur frá Guideline og Alta NGx, Devils Canyon eða Darkhorse vöðluskóna. Vöðlurnar eru framleiddar úr fjögurra laga efni fyrir neðan mitti en þriggja laga efni ofan mittis. Þær eru í grunninn rennilásavöðlur sem þó má breyta í mittisvöðlur á einfaldan hátt.

HD Sonic vöðlurnar eru gerðar til að standast mikið álag, en anda þrátt fyrir það vel og veita um leið mikinn hreyfanleika. Framan á vöðlunum er vatnsheldur TIZIP®-rennilás til aukinna þæginda, en afar einfalt er að fara úr og í vöðlurnar. Á þeim eru tveir brjóstvasar staðsettir hátt, en að auki vasi að innanverðu, t.d. undir símann eða bíllykla. Vasarnir eru með vatnsvörðum YKK AquaGuard®-rennilásum.

Vöðlurnar sitja fremur hátt svo unnt er að vaða dýpra en í venjulegum vöðlum. Sokkar þeirra eru gerðir úr náttúrulegum gúmmíefnum og eru mjög þægilegir viðkomu. Áfastar sandhlífar úr samskonar efni eru á skálmum, en þær falla vel yfir flesta vöðluskó. Teygjanlegt nælonbelti fylgir, en það er hægt að staðsetja eftir þörfum hvers og eins.

Devils Canyon eru ákaflega léttir vöðluskór sem falla vel að fótunum. Þeir eru með góðan ökklastuðning, þeir eru fljótir að þorna en sérstakar rásir tryggja að vatn eigi greiða leið úr skónum þegar á bakkann er komið. Hæll og tá eru sérstaklega styrkt en skórinn sjálfur er framleiddur úr mjúku gúmmíefni sem aðlagar sig að fótum notenda.

Darkhorse skórinir eru uppbyggðir á svipaðan hátt og Devils Canyon. Þeir eru þó búnir sérstöku 3PFS-kerfi, sem eykur þægindi til muna og styður um leið við ökkla og liðbönd. Hællinn er klæddur þar til gerðum stuðningspúðum sem skorða fótinn örugglega. Báðir Korkers skórnir eru með M2 Boa® vírakerfi sem gerir reimarnar óþarfar og eykur mjög þægindi við veiðar en ekki síður við að fara í þá og úr. Þá er skórnir með útskiptanlegum OmniTrax-sólum, en þeim fylgir bæði gúmmí- og filtbotn.

Alta NGx vöðluskórnir frá Guideline eru með Vibram® Idrogrip gúmmísóla sem býður upp á þægindi, stöðugleika og langa endingu. Miðsólinn ásamt stífu gerviefni sjá til þess að veita frábæran stuðning í grófu landslagi. Skórnir eru sérstaklega styrktir og þola því betur hnjask frá hvössum grjótum þegar vaðið er.