Heim • Skilmálar

Almennir skilmálar

1) Skilgreining

Seljandi er Árvík veiðivörur ehf., kt. 630216-1410, virðisaukaskattsnúmer 123281. Árvík veiðivörur ehf., er skráð félag í Firmaskrá. Kaupandi er sá aðili sem skráður er kaupandi á reikningi.

2) Afgreiðsla pantana

Allar pantanir eru afgreiddar á þeim degi sem þær berast, helgar og aðrir frídagar eru þó ekki meðtaldir nema yfir sumarmánuðina. Pantanir eru sendar út á virkum dögum nema um annað sé sérstaklega samið. Vörur eru sendar með Íslandspósti og Dropp. Afgreiðslufrestur að jafnaði 1-2 dagar. Einnig er hægt að sækja vörur í verslun Veiðiflugna að Langholtsvegi 111 skv. auglýstum opnunartíma.

3) Skilaréttur

Kaupandi getur skilað vöru keyptri af seljanda innan 30 daga, valið nýja eða fengið hana endurgreidda. Forsendur þess að unnt sé að skila vöru er að hún sé í upprunalegu ástandi ásamt umbúðum. Ekki er hægt að skila notaðri vöru. Kassastrimill, reikningur eða gjafamiði er skilyrði fyrir vöruskilum. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé í lagi, þó innan eðlilegra tímamarka. Hafi vara skemmst í sendingu biðjum við viðskiptavini um að hafa samband við Veiðiflugur í síma 527-1060 eða með tölvupósti á [email protected].

4) Upplýsingar

Upplýsingar um vörur eru birtar eftir bestu vitund hverju sinni. Seljandi birtir allar upplýsingar með fyrirvara um galla, prent- og innsláttarvillur, verð og myndir. Krókar fylgja flugum ekki nema flugan sé hnýtt á krók, s.s. einkrækju, tví- eða þríkrækju. Vöruúrval kann að vera mismunandi milli netverslunar og verslunar. Seljandi áskilur sér rétt til að aflýsa í heild eða að hluta til pöntun kaupanda ef vara verður uppseld, þ.e. á milli þess tíma sem pöntun er móttekin og hún tekin til afgreiðslu. Undir þeim kringumstæðum fær kaupandi tilkynningu þess efnis. Kaupandi á þá möguleika á að samþykkja breytta pöntun eða aflýsa henni í heild sinni.

5) Verð

Verð í netverslun kunna að breytast án fyrirvara. Verðhækkanir- eða lækkanir sem verða eftir pöntun viðskiptavinar eru ekki afturkræfar. Það verð gildir sem kemur fram á pöntunarstaðfestingu og eða reikningi kaupanda. Heildarkostnaður að flutningskostnaði meðtöldum er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun endanlega. Verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur.

6) Greiðslur

Greitt er fyrir vörur með greiðslukorti, Netgíró, Pei, Síminn Pay eða bankamillifærslu. Eftir að kaupandi staðfestir pöntun er hann fluttur á örugga greiðslusíðu þjónustuaðila. Pöntun er ekki afgreidd fyrr en greiðsla hefur borist. Ef greiðsla fyrir netpöntun berst ekki innan tveggja daga, áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa pöntuninni.

7) Öryggi og meðferð persónuupplýsinga

Farið er með allar persónuupplýsingar sem seljandi móttekur sem trúnaðarupplýsingar og þær aðeins nýttar í þeim tilgangi að klára viðskiptafærslu. Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar persónuupplýsingar í tengslum við viðskipti. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. Greiðslur með greiðslukortum eru inntar af hendi í gegnum örugga vefsíðu Valitor.

8) Ábyrgðir

Ábyrgð vegna gallaðrar vöru er í samræmi við neytendakaupalög nr. 48/2003 og miðast við kaupdagsetningu til einstaklinga. Ef um ræðir sölu á vöru til fyrirtækis er ábyrgð á galla eitt ár frá kaupdagsetningu samkvæmt lögum um lausafjárkaup nr. 50/2000. Ábyrgðir á veiðistöngum eru skv. skilmálum hvers framleiðanda.

9) Höfundarréttur

Allt efni í vefverslun Veiðiflugna, www.veidiflugur.is, er varið höfundarrétti, þ.m.t., myndir, vörulýsingar og umfjallanir hverskonar. Allur réttur er áskilinn.