Patagonia W’s Swiftcurrent Exp. Zip-Front Dömuvöðlupakki II

Frábær vöðlupakki fyrir konur sem sameinar gæði og endingu. Pakkinn inniheldur W’s Swiftcurrent Expedition Zip-Front dömuvöðlurnar frá Patagonia og endingargóða vöðluskó frá Korkers. Efni vaðlanna er gert fyrir mikla notkun og er einsaumsbygging þeirra til þess fallin að auka endingu og slitþol.

148.900kr.

Patagonia W's Swiftcurrent Exp. Zip-Front Dömuvöðlur

Darkhorse Vöðluskór (Dömu)

Devils Canyon Vöðluskór

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Frábær vöðlupakki fyrir konur sem sameinar gæði og endingu. Pakkinn inniheldur W’s Swiftcurrent Expedition Zip-Front dömuvöðlurnar frá Patagonia og endingargóða vöðluskó frá Korkers. Efni vaðlanna er gert fyrir mikla notkun og er einsaumsbygging þeirra til þess fallin að auka endingu og slitþol.

W’s Swiftcurrent Expedition Zip-Front eru glæsilegar renndar dömuvöðlur frá Patagonia. Þær eru framleiddar úr fjögurra laga öndunarefni sem er að fullu vatnshelt og nefnist H2No®, en það hefur Patagonia þróað til langs tíma. Efni vaðlanna er gert fyrir mikla notkun og er einsaumsbygging þeirra til þess fallin að auka endingu og slitþol. Á þeim eru stillanleg axlarbönd og sylgjukerfi að aftan sem gerir notandanum kleift að létta af án þess að afklæðast. Vöðlunum má með einföldum hætti breyta í mittisvöðlur.

Meðal eiginleika er vatnsheldur vasi að innanverðu, vasi til að verma hendur, hnéhlífar og vöðlusokkar sem aðlagaðir eru hvorum fæti. Þeir eru sérstaklega hannaðir til að standast mikið álag en þeir eru ekki framleiddir úr hefðbundnu neoprene-efni. Þess í stað notar Patagonia blöndu af gúmmíefnum, samskonar þeim sem notuð eru í blautbúninga. Vöðlunum fylgir teygjanlegt belti. Á þeim er níðsterkur YKK-rennilás sem er 100% vatnsheldur og stenst álagið við mikla notkun.

Vöðlunum fylgja vandaðir skór frá Korkers, en hægt er að velja á milli Devils Canyon eða Darkhorse dömuskónna. Devils Canyon eru ákaflega léttir vöðluskór sem falla vel að fótunum. Þeir eru með góðan ökklastuðning og eru fljótir að þorna. Sérstakar rásir tryggja að vatn eigi greiða leið úr skónum þegar á bakkann er komið. Hæll og tá eru sérstaklega styrkt en skórinn sjálfur er framleiddur úr mjúku gúmmíefni sem aðlagar sig að fótum notandans.

Darkhorse dömuskórnir eru uppbyggðir á svipaðan hátt og Devils Canyon. Þeir eru umfram þá búnir 3PFS-kerfi, sem eykur þægindi til muna og styður um leið við ökkla og liðbönd. Hællinn er klæddur þar til gerðum stuðningspúðum sem skorða fótinn örugglega. Báðir skórnir eru með M2 Boa® vírakerfi sem gerir reimarnar óþarfar og eykur mjög þægindi við veiðar en ekki síður við að fara í þá og úr. Þá er skórnir með útskiptanlegum OmniTrax-sólum, en þeim fylgir bæði gúmmí- og filtbotn.