Patagonia Swiftcurrent Expedition Vöðlupakki III

Virkilega vandaður vöðlupakki sem samanstendur af Swiftcurrent Expedition vöðlum frá Patagonia og Foot Tractor vöðluskóm sem framleiddir eru af Danner. Vöðlurnar eru gerðar úr þriggja- og fjögurra laga vatnsheldu öndunarefni sem nefnist H2No®, en það hefur Patagonia þróað undanfarinn áratug. Efnið er nú slitsterkara og þjálla en áður.

178.900kr.

Patagonia Swiftcurrent Expedition Vöðlur

Patagonia Foot Tractor Vöðluskór

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Swiftcurrent Expedition eru frábærar vöðlur frá Patagonia sem framleiddar eru úr þriggja- og fjögurra laga öndunarefni sem nefnist H2No®. Patagonia hefur prófað og þróað efnið undanfarinn áratug og er það nú slitsterkara og þjálla en áður. Breytingin tryggir aukin þægindi og lengri endingu.

Swiftcurrent Expedition eru styrktar í klofi og á skálmum svo veiðimenn þurfi ekki að hafa áhyggjur af saumum þegar gengið er um brattlendi eða í öðrum krefjandi aðstæðum. Þá eru vöðlusokkarnir hannaðir til að standast mikið álag en þeir eru ekki framleiddir úr hefðbundnu neoprene-efni. Þess í stað notar Patagonia blöndu af gúmmíefnum, samskonar þeim sem notuð eru í blautbúninga. Á hnjám vaðlanna eru hnépúðar til aukinna þæginda þegar kropið er. Vöðlunum fylgir teygjanlegt belti.

Framan á vöðlunum er stór renndur vasi fyrir miðju með vatnsvörðum rennilás. Á hvorri hlið eru renndir fóðraðir vasar til að verma hendur. Að innanverðu er tvöfaldur vatnsheldur poki sem velta má fram, hann er ætlaður undir síma og bíllykla. Axlarbönd eru stillt með einu handtaki og má færa efri hlutann frá bringu að mitti. Sú hönnun er einkennismerki Patagonia sem oft getur komið sér vel, sérstaklega á góðviðrisdögum þegar heilar vöðlur eru óþarfar. Vöðlurnar má m.ö.o. nota á hefðbundinn hátt en einnig sem mittisvöðlur.

Foot Tractor vöðluskórnir frá Patagonia eru einhverjir þeir öflugustu sem völ er á. Þeir veita fyrirtaks stuðning og vernd við veiðar. Skórnir eru með neglanlegum Vibram® gúmmísóla sem veitir mikið grip. Vöðluskórnir eru hannaðir og framleiddir í samstarfi með Danner® og eru þeir handsaumaðir í Portland í Bandaríkjunum. Vöðlukórnir eru gerðir úr leðri (e. Full-Grain Leather) sem er einstaklega endingargott. Reimarnar eru þræddar í gegnum augu yfir ristina, en að ofanverðu eru þær kræktar. Afar þægilegt er að fara í og úr skónum, hvort sem þeir eru blautir eða þurrir. Skórnir eru með innbyggðu frárennsliskerfi svo þeir þorna fljótt þegar á bakkann er komið.

Patagonia Swiftcurrent vöðlupakki III er einstaklega vandaður og hentar þeim sérstaklega sem kjósa aðeins það besta.