Laxá Zip Vöðlupakki I er góður kostur fyrir þá sem vilja þægilegar rennilásavöðlur og trausta skó á hagstæðu verði. Vöðlurnar eru framleiddar úr slitsterku 4-laga nælonefni sem er meðhöndlað til að hrinda frá sér vatni og óhreinindum. Sidewinder-lokun á saumum eykur bæði styrk og sveigjanleika og gerir þær endingargóðar í notkun.
Vatnsheldur TIZIP-rennilás að framan gerir mjög auðvelt að fara í og úr vöðlunum og eykur þægindi til muna. Ofarlega á brjóstinu eru tveir stórir vasar með lóðréttum rennilásum sem henta vel fyrir flugubox og annað veiðidót. Á hliðum eru flísfóðraðir vasar til að verma hendur. Axlarbönd eru þægileg og auðvelt að stilla, og vöðlubeltið er teygjanlegt og situr í beltislykkju að aftan.
Sandhlífar eru úr álagsþolnu efni með teygju sem fellur vel yfir vöðluskóna. Sokkarnir eru úr þéttu neoprene efni og mótaðir fyrir hvorn fót, sem eykur þægindi til muna.
Laxá 3.0 vöðluskórnir eru léttir og slitsterkir skór sem þorna fljótt eftir notkun. Þeir eru styrktir á hliðum til að verjast sliti þegar gengið er yfir gróft undirlag. Skórnir eru annað hvort með grófum filtbotni sem er ísaumaður fyrir aukna endingu eða negldum gúmmísóla (traction) fyrir betra grip við krefjandi aðstæður. Þeir reimast hátt og veita góðan stuðning við ökklana, auk þess sem auðvelt er að fara í þá og úr.
Fishpond Net Holster - Háfaslíður 

































