Laxá 3.0 Vöðluskór (filt)

Laxá 3.0 eru fisléttir og þægilegir vöðluskór. Þeir eru með saumuðum filtbotni sem hægt er að negla. Vöðluskórnir eru með endurhannaðan miðsóla sem veitir aukinn stuðning á löngum veiðidögum.

27.995kr.

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Laxá 3.0 eru fisléttir og þægilegir vöðluskór. Þeir eru með saumuðum filtbotni sem hægt er að negla. Vöðluskórnir eru með endurhannaðan miðsóla sem veitir aukinn stuðning á löngum veiðidögum.

Innra efni skónna er úr einskonar frauði sem dregur lítið í sig og tryggir að skórnir haldist ávallt léttir. Sérstakt styrkingarlag er á tá- og hælsvæði sem eykur styrk skónna og stífleika. Þeir halda því lögun sinni vel, jafnvel þótt vaðið sé djúpt eða í miklum straumi. Að auki veitir styrkingin meiri þægindi og hlýju þar sem minni þrýstingur myndast á tærnar.

Neðri hluti vöðluskónna er sérstaklega styrktur með gúmmíi til að standast álagið þegar vaðið er innan um hvöss grjót. Einkar þægilegt er að fara í og úr skónum og þá má herða að vild.