Patagonia Swiftcurrent Traverse Vöðlupakki II

Vandaður vöðlupakki með léttum rennilásavöðlum frá Patagonia og sterkum vöðluskóm frá Korkers. Swiftcurrent Traverse vöðlurnar eru úr fjögurra laga H2No™ Performance efni og í pakkanum er val á milli Devils Canyon eða Darkhorse vöðluskóa.

125.900kr.

Patagonia Swiftcurrent Traverse Zip Front Vöðlur

Devils Canyon Vöðluskór

Darkhorse Vöðluskór

Patagonia Swiftcurrent Traverse Vöðlupakki II er vel samsettur pakki þar sem léttleiki, hreyfigeta og góður stuðningur fara saman. Swiftcurrent Traverse vöðlurnar eru úr fjögurra laga H2No™ Performance öndunarefni sem er vatnshelt, slitsterkt og þægilegt í notkun. Ysta lagið er úr 100% endurunnu pólýester og vöðlurnar eru með vatnsfráhrindandi DWR-áferð.

Þetta eru rennilásavöðlur sem taka lítið pláss í tösku og henta vel í lengri ferðir, göngur og veiði þar sem hreyfanleiki skiptir máli. Formsaumaðir fætur, ergonomískt bak og sérstakt klofsnið draga úr álagi á sauma og gefa góða hreyfigetu þegar gengið er, vaðið eða kropið við bakka. Vöðlurnar eru framleiddar í Fair Trade Certified™ verksmiðju.

Vatnsheldur YKK® rennilás að framan gerir auðvelt að fara í og úr vöðlunum. Teygjanlegt mittisband með snúrusamdrætti og Secure Stretch™ vöðlubelti tryggja þægilega aðlögun. Að innan er rúmgóður teygjanlegur vasi með rennilás fyrir verðmæti og annar teygjuvasi fyrir smáhluti. Aftan á er hengilykkja sem nýtist við þurrkun og geymslu.

Að utan eru tveir teygjanlegir brjóstvasar með rennilásum fyrir flugubox, verkfæri og annan búnað. Festingar aftan á nýtast fyrir háf og aukahluti. Við ökklasvæði eru slitvarnarhlífar sem verja gegn núningi og sokkarnir eru mótaðir með sokkalíku sniði til að auka þægindi yfir langan dag.

Í pakkanum er val á milli tveggja vöðluskóa frá Korkers. Devils Canyon eru léttir, þægilegir og falla vel að fæti. Þeir veita góðan ökklastuðning og frárennslisrásir losa vatn hratt úr skónum þegar komið er upp á bakka.

Darkhorse skórnir eru sterkari í uppbyggingu og bjóða upp á meiri stuðning. Þeir eru með 3PFS-kerfi sem styður við ökkla og liðbönd og skorðar fótinn vel. Báðir skórnir eru með M4 BOA® vírakerfi og útskiptanlegum OmniTrax-sólum þar sem fylgja bæði gúmmí- og filtbotnar.