Laerdal Vöðlupakki (Dömu) I

Góður dömupakki frá Guideline með Laerdal vöðlum og Laxá 3.0 vöðluskóm. Vöðlurnar eru hannaðar sérstaklega fyrir konur, með léttu þriggja laga efni að ofan og sterkara fjögurra laga efni að neðan. Í pakkanum er val um Laxá skó með filtbotni eða negldum gúmmísóla.

86.900kr.

Laerdal W's Dömuvöðlur

Laxá 3.0 Vöðluskór (traction)

Laxá 3.0 Vöðluskór (filt)

Laerdal Vöðlupakki I er vel samsettur pakki fyrir konur sem vilja þægilegar vöðlur og trausta vöðluskó á góðu verði. Laerdal vöðlurnar frá Guideline eru hannaðar með hreyfigetu og þægindi í forgrunni og henta jafnt þeim sem eru að byrja í veiðinni og þeim sem eru komnar lengra.

Vöðlurnar eru úr tveimur gerðum af nælonefni. Efri hlutinn er úr léttara þriggja laga efni sem gerir þær þægilegar og meðfærilegar, á meðan neðri hlutinn er úr slitsterkara fjögurra laga efni þar sem meira mæðir á. Sniðið er lagað að konum, vöðlurnar sitja vel yfir bringu og mittið er stillanlegt svo auðvelt sé að laga þær að líkamanum og þeim fatnaði sem notaður er undir.

Laerdal má nota sem hefðbundnar brjóstvöðlur en einnig er auðvelt að færa þær niður og nota sem mittisvöðlur þegar aðstæður leyfa. Framan á vöðlunum er rúmgóður vasi sem fellur út þegar hann er opnaður og þar fyrir aftan er opinn fóðraður vasi til að verma hendur. Innbyggðar festingar fyrir veiðitól, til dæmis taumaklippur og losunartöng, gera notkunina einfaldari við ána.

Vöðlusokkarnir eru úr náttúrulegum gúmmíefnum og mótaðir til að minnka líkur á krumpum og auka þægindi í skónum. Áfastar sandhlífar falla vel yfir flesta vöðluskó og teygjanlegt nælonbelti fylgir. Beltið má staðsetja eftir þörfum svo vöðlurnar sitji sem best. Laerdal fást bæði í Regular og Queen-stærðum.

Laxá 3.0 vöðluskórnir eru léttir, þægilegir og slitsterkir skór frá Guideline. Þeir þorna fljótt og eru styrktir með gúmmíi á hliðum til að verjast sliti þegar gengið er yfir gróft undirlag eða milli hvassra steina. Hægt er að velja skóna með grófum filtbotni sem er saumaður í fyrir aukna endingu eða með negldum gúmmísóla, Laxá Traction, fyrir betra grip á sleipu undirlagi.

Skórnir reimast hátt og veita góðan stuðning við ökkla. Hönnun þeirra gerir jafnframt auðvelt að fara í þá og úr, sem er stór kostur þegar skipt er um búnað við ána.