Alta Sonic TiZip Vöðlupakki II

Alvöru vöðlupakki sem inniheldur Alta Sonic TiZip rennilásavöðlur og vandaða vöðluskó. Vöðlurnar eru saumalausar og framleiddar úr hágæða 4-laga nælonefni sem er bæði slitsterkt og endingargott. Í þær er notað tvennskonar nælonefni, annarsvegar sérstaklega styrkt efni á álagsstaði en léttara efni á síður viðkvæm svæði.

124.900kr.

Alta Sonic TiZip Vöðlur

ULBC Vibram Vöðluskór

Vara uppseld

HD Vibram Vöðluskór

River Ops Vöðluskór

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Þessi vöðlupakki samanstendur af Alta Sonic TiZip öndunarvöðlum frá Guideline og vönduðum vöðluskóm. Vöðlurnar eru renndar að framan, saumalausar og framleiddar eru úr hágæða 4-laga nælonefni sem er bæði slitsterkt og endingargott. Vöðlurnar búa að saumalausum frágangi og í þær er notað tvennskonar nælonefni, annarsvegar sérstaklega styrkt efni á álagsstaði en léttara efni á síður viðkvæm svæði. Tveir rúmgóðir vasar eru að framan auk tveggja minni brjóstvasa. Á hliðum eru fóðraðir vasar fyrir hendur en einnig eru festingar fyrir ýmsa aukahluti, s.s. tangir, taumaklippur og háf. Sandhlífar og vöðlusokkar eru úr sterku neophreneefni og fylgir vöðlunum gott belti. Alta Sonic vöðlurnar hafa verið í notkun hjá mörgum leiðsögumönnum á Íslandi og reynst ákaflega vel.

Val stendur á milli þriggja vöðluskóa sem framleiddir af Guideline og Korkers. ULBC vöðluskórinn frá Guideline er í raun þrennskonar skór í einum, en þá má nota í veiði, gönguferðir eða aðra útivist. Með snjallri 3-í-1 hönnun eru ULBC skórnir hið fullkomna tól fyrir krefjandi veiðiferðir, þar sem þyngd farangursins skiptir sköpum. Vöðluskórnir sameina þægilega, sterka og háa ökklaskó, nútímalega og tæknilega vöðluskó og vatnshelda og andandi stígvél. Svo í lengri veiðiferðum, þar sem gengið er yfir langan veg, er annar skófatnaður óþarfur.

Guideline HD (Heavy Duty) vöðluskórnir eru hannaðir til notkunar við erfiðustu veiðiaðstæður. Vegna aukinnar hæðar, þykkari bólstrunar og mikils stífleika í efninu hafa skórnir aukinn stöðugleika sem hjálpar þegar vaðið er á grófum árbotni og í ójöfnu landslagi.

Korkers River Ops vöðluskórnir eru sérstaklega hugsaðir fyrir þá sem verja mörgum dögum á sumri við veiðar. Þeir eru tilvaldir fyrir þá sem kjósa áreiðanleika og þægindi. Einstök ending skónna næst fram með tækni sem kallast Exo-Tec. Þeir eru ekki saumaðir á hefðbundinn hátt heldur mótaðir án þess að saumar komi nærri. Skórnir eru samsettir með bræðslutækni sem kemur í veg fyrir að álagsfletir trosni upp.