Hver er munurinn á brass og tungsten?
Brass-hausar
Það sem í daglegu tali nefnist brass er blanda af kopar og sinki. Brass er tiltölulega eðlislétt efni í samanburði við aðra málma. Kúluhausar, keiluhausar og fleiri gerðir hausa til fluguhnýtinga eru gjarnan framleiddir úr brass og í þeim tilgangi að þyngja fluguna svo hún veiði á meira dýpi. Brass hausar henta á hverskonar flugur, bæði í lax og silungsveiði. Brass kúluhausar eru mikið notaðir í silungapúpur, til veiða í stöðuvötnum eða í andstreymisveiði þar sem dýpt er ekki mikil. Brass keiluhausa má svo nota í straumflugur eða á túpur.
Tungsten-hausar
Um tungsten hausa gilda önnur lögmál. Tunsten er þungmálmur, en nafnið er tilkomið vegna þyngdar efnisins, tung sten, sem merkir þungur steinn. Tungsten hausar eru mun þyngri en brass og er ætlað sökkva flugunni hratt. Fluguhnýtingarefni eins og tungsten kúluhausar er tilvalið á púpur, til veiða í dýpri vötnum, en ekki hvað síst í andstreymisveiði, því sem nefnt er upstream-veiði. Lykilatriði í slíkri veiði er að koma flugunni hratt niður til að hún komist sem næst fiskinum, fluga sem fiskur þarf að sækja langt er ekki jafn líklega til að virka. Þá eru til tungsten keiluhausar sem notaðir eru til hnýtinga á túpum og straumflugum.