Patagonia Swiftcurrent Expedition Zip-Front Vöðlupakki I

Virkilega flottur vöðlupakki sem samanstendur af Swiftcurrent Expedition Zip-Front rennilásavöðlum frá Patagonia og Korkers vöðluskóm með útskiptanlegum botnum. Vöðlurnar eru framleiddar úr þriggja- og fjögurra laga öndunarefni sem er að fullu vatnshelt og nefnist H2No®.

156.900kr.

Patagonia Swiftcurrent Expedition Zip-Front Vöðlur

Devils Canyon Vöðluskór

Darkhorse Vöðluskór

Terror Ridge Vöðluskór

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Swiftcurrent Expedition Zip-Front eru glæsilegar rennilásavöðlur frá Patagonia sem framleiddar eru úr þriggja- og fjögurra laga öndunarefni. Patagonia hefur prófað og þróað H2No® efnið undanfarinn áratug, en það er nú orðið slitsterkara og þjálla en áður. Vöðlurnar eru sérstaklega styrktar í klofi og skálmum svo veiðimenn þurfi ekki að hafa áhyggjur af saumum þegar gengið er um brattlendi eða í öðrum krefjandi aðstæðum. Þá eru vöðlusokkarnir sérstaklega hannaðir til að standast mikið álag en þeir eru ekki framleiddir úr hefðbundnu neoprene-efni. Þess í stað notar Patagonia blöndu af gúmmíefnum, samskonar þeim sem notuð eru í blautbúninga.

Á hnjám vaðlanna eru hnépúðar til aukinna þæginda þegar kropið er. Vöðlunum fylgir teygjanlegt belti. Vöðlurnar eru renndar með níðsterkum YKK-rennilás sem er 100% vatnsheldur og stenst álagið við mikla notkun. Hæð vaðlanna má stilla með einföldum hætti, t.d. má færa þær neðar á heitum sumardögum. Tveir rúmgóðir vasar eru utan á vöðlunum, báðir með vatnsvörðum rennilásum. Á hliðum eru fóðraðir vasar fyrir kaldar hendur. Vöðlubeltið er ú teygjanlegu efni sem situr í slíðrum, til varnar því að beltið færist úr skorðum. Að innanverðu er tvöfaldur vatnsheldur poki sem velta má fram, og er ætlaður undir síma og bíllykla. Í þeim rúmast einnig flugubox eða ýmiss veiðitól.

Vöðlunum fylgja vandaðir vöðluskór frá Korkers, en hægt er að velja á milli Devils Canyon, Darkhorse og Terror Ridge skónna. Devils Canyon eru ákaflega léttir vöðluskór sem falla vel að fótunum. Þeir eru með góðan ökklastuðning, þeir eru fljótir að þorna en sérstakar rásir tryggja að vatn eigi greiða leið úr skónum þegar á bakkann er komið. Hæll og tá eru sérstaklega styrkt en skórinn sjálfur er framleiddur úr mjúku gúmmíefni sem aðlagar sig að fótum notenda.

Darkhorse skórinir eru uppbyggðir á svipaðan hátt og Devils Canyon. Þeir eru þó búnir sérstöku 3PFS-kerfi, sem eykur þægindi til muna og styður um leið við ökkla og liðbönd. Hællinn er klæddur þar til gerðum stuðningspúðum sem skorða fótinn örugglega. Báðir skórnir eru með M2 Boa® vírakerfi sem gerir reimarnar óþarfar og eykur mjög þægindi við veiðar en ekki síður við að fara í þá og úr. Þá er skórnir með útskiptanlegum OmniTrax-sólum, en þeim fylgir bæði gúmmí- og filtbotn.

Terror Ridge er framleiddur úr vatnsfráhrindandi efnum sem eru ákaflega slitsterk og endingargóð. Skórinn er búinn einstöku kerfi sem skorðar fótinn örugglega og veitir góðan ökklastuðning. Búnaðurinn nýtist sérlega vel í krefjandi landslagi, s.s. þegar farið er um brattlendi eða grýttar ár. Frárennsli skónna er hannað þannig að vatn eigi greiða leið út, til að tryggja að skórinn sé eins léttur og mögulegt er þegar komið er í land. Terror Ridge eru búnir hefðbundnum reimum.

Patagonia Swiftcurrent Zip vöðlupakkinn er virkilega flottur og hentar þeim sem kjósa gæði, þægindi og góða endingu.