Patagonia Swiftcurrent Vöðlupakki I

Flottur vöðlupakki á góðu verði í ljósi mikilla gæða. Hann samansendur af Swiftcurrent vöðlunum frá Patagonia og vönduðum vöðluskóm frá Korkers. Patagonia hefur þróað efnið í vöðlunum undanfarinn áratug og er það nú slitsterkara og þjálla en áður.

110.900kr.

Patagonia Swiftcurrent Vöðlur

Devils Canyon Vöðluskór

Darkhorse Vöðluskór

Terror Ridge Vöðluskór

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Flottur vöðlupakki á góðu verði í ljósi mikilla gæða. Hann samansendur af Swiftcurrent vöðlunum frá Patagonia og vönduðum vöðluskóm frá Korkers. Patagonia hefur þróað efnið í vöðlunum undanfarinn áratug og er það nú slitsterkara og þjálla en áður. Breytingin tryggir aukin þægindi og lengri endingu. Þessar fjölhæfu og léttu öndunarvöðlur má nota sem uppháar vöðlur eða sem mittisvöðlur. Á meðal eiginleika er vatnsheldur vasi að innanverðu, vasar á hliðum til að verma hendur, teygjuofinn brjóstvasi og vöðlusokkar sem aðlagaðir eru hvorum fæti.

Framan á vöðlunum er rúmgóður renndur vasi fyrir miðju með vatnsvörðum rennilás. Hann má nota undir flugubox eða ýmis veiðitól. Á hvorri hlið eru fóðraðir vasar til að verma hendur. Að innanverðu er vatnsheldur poki sem velta má fram, hann er ætlaður undir síma og bíllykla. Axlarbönd eru stillt með einu handtaki og má færa efri hlutann frá bringu að mitti. Sú hönnun er einkennismerki Patagonia sem oft getur komið sér vel, sérstaklega á góðviðrisdögum þegar heilar vöðlur eru óþarfar.

Vöðlunum fylgja vöðluskór frá Korkers, en hægt er að velja á milli Devils Canyon, Darkhorse og Terror Ridge skónna. Devils Canyon eru ákaflega léttir vöðluskór sem falla vel að fótunum. Þeir eru með góðan ökklastuðning, þeir eru fljótir að þorna en sérstakar rásir tryggja að vatn eigi greiða leið úr skónum þegar á bakkann er komið. Hæll og tá eru sérstaklega styrkt en skórinn sjálfur er framleiddur úr mjúku gúmmíefni sem aðlagar sig að fótum notenda.

Darkhorse skórinir eru uppbyggðir á svipaðan hátt og Devils Canyon. Þeir eru þó búnir sérstöku 3PFS-kerfi, sem eykur þægindi til muna og styður um leið við ökkla og liðbönd. Hællinn er klæddur þar til gerðum stuðningspúðum sem skorða fótinn örugglega. Báðir skórnir eru með M2 Boa® vírakerfi sem gerir reimarnar óþarfar og eykur mjög þægindi við veiðar en ekki síður við að fara í þá og úr. Þá er skórnir með útskiptanlegum OmniTrax-sólum, en þeim fylgir bæði gúmmí- og filtbotn.

Terror Ridge er framleiddur úr vatnsfráhrindandi efnum sem eru ákaflega slitsterk og endingargóð. Skórinn er búinn einstöku kerfi sem skorðar fótinn örugglega og veitir góðan ökklastuðning. Búnaðurinn nýtist sérlega vel í krefjandi landslagi, s.s. þegar farið er um brattlendi eða grýttar ár. Frárennsli skónna er hannað þannig að vatn eigi greiða leið út, til að tryggja að skórinn sé eins léttur og mögulegt er þegar komið er í land. Terror Ridge eru búnir hefðbundnum reimum.