Fluguhnýtingavörur í miklu úrvali
Í Veiðiflugum má finna fjölbreytt úrval af fluguhnýtingavörum. Á boðstólnum eru ýmis tæki og tól, ýmiskonar fluguhnýtingaefni, fluguhnýtingaþvingur, lökk, UV-ljós, hnýtingakæri, túpuefni og hnýtingakrókar. Hér má finna helstu vörur og vöruflokka.
FLUGUHNÝTINGAR
Fluguhnýtingar eru sívinsælt áhugamál, enda er það veiðimönnum eðlislægt að vilja bæta sig, finna fluguna sem virkar og auka þannig líkurnar á árangri. Því fylgir bæði skemmtun og ró að hnýta flugur, að láta ímyndunaraflið ráða för í sköpunarferlinu. Þá er það ekki síður góð tilfinning að setja í fisk, hvort heldur lax eða silung, á flugu sem veiðimaðurinn hefur sjálfur hýtt. Í Veiðiflugum má finna ríkulegt úrval af tækjum og tólum til fluguhnýtinga, fjölbreytt fluguhnýtingaefni, fluguhnýtingaþvingur, auk þess sem verslunin býður landsins mesta úrval af hnýtingakrókum.
Skoða vöruflokka
FLUGUHNÝTINGAÞVINGUR
Ertu að leita að vise fyrir fluguhnýtingar?
Fjölmargar gerðir af vönduðum fluguhnýtingaþvingum frá þekktum framleiðendum eru á boðstólnum í Veiðiflugum. Stonfo er framleiðir hágæða þvingur á breiðu verðbili og hefur fyrirtækið getið sér gott orð á meðal flughnýtara um heim allan. Þá bjóða Veiðiflugur einnig upp á fluguhnýtingavæsa frá Griffin og Marryat. Hvort þú ert að byrja í fluguhnýtingum eða hefur lagt stund á áhugamálið í lengri tíma máttu vera viss um að finna réttu græjurnar í Veiðiflugum.
fluguhnýtingasett
Fjölbreytt úrval af hnýtingasettum
Í netverslun Veiðiflugna má finna fluguhnýtingasett sem eru sérvalin til að mæta ólíkum kunnáttustigum og til að hámarka notagildi. Hnýtingasettin samanstanda í gunninn af hnýtingaþvingu, keflishöldu, hnýtingaskærum, krókum eða túpuefni auk ýmiskonar fluguhnýtingaefnis.
AUKAHLUTIR FYRIR ÞVINGUR
Gagnlegir aukahlutir
Til að mæta ólíkum þörfum hnýtara bjóða Veiðiflugur upp á ýmiskonar aukabúnað til notkunar með fluguhnýtingaþvingum. Stækkunargler, borðfætur, hnýtingagálgar, ruslakörfur og keflishvílur eru á meðal þess sem íslenskum fluguhnýturum stendur til boða.
Áhöld fyrir fluguhnýtingar
Vönduð fluguhnýtingaáhöld
Þegar kemur að fluguhnýtingum skiptir færni hnýtarans miklu máli, allir vilja jú hnýta þokkalega fallegar flugur. En það er ekki síður mikilvægt að áhöldin sem notuð eru til verksins séu góð. Veiðiflugur bjóða mikið að úrval viðurkenndra verkfæra, tækja og tóla í fluguhnýtingar, s.s. keflishöldur, þræðara og dubbing tól.
FLUGUHNÝTINGASKÆRI
Eitt mikilvægasta áhaldið í fluguhnýtingum eru skærin. Það skiptir máli að þau séu beitt og áreiðanleg. Veiðiflugur bjóða upp á margar gerðir vandaðra fluguhnýtingaskæra frá Loon, Frödinflies og fleiri framleiðendum.
Litríkt fluguhnýtingaefni
Allt í fluguhnýtingar – Frábært úrval og gott verð
Fluguhnýtingar eru uppspretta nýrra hugmynda, enda eru möguleikarnir í efnisvali nær óendanlegir. Ólíkt því sem áður var er framboð efnis mikið sem gefur fluguhnýturum nútímans lausan tauminn. Í Veiðiflugum er ótrúlegt úrval af fluguhnýtingaefni frá fjölmörgum framleiðendum á borð Semperfli, Veniard, Loon og Stonfo. Á boðstólnum eru ýmsar fjaðrir og hár, s.s. hrosshár og geit , brass og tungsten kúluhausar, keilur, þræðir, tvinnar, floss, tinsel, ull og margt fleira.
LÖKK, LÍM OG uv-LJÓS
Til að tryggja lengri endingu
Margar gerðir af lakki og lími eru til, misgóð eins og gengur. Í netverslun Veiðiflugna má finna gott úrval af gæðavörum, s.s. hefðbundið acyl-lakk, UV-lakk í mörgum litum og þykktum auk Zap-a-Gap tonnataksins. Þá eru fáanlegar nokkrar gerðir af UV-ljósum.
Túpuplast og áhöld
Túpuefni sem hentar íslenskum aðstæðum
Veiðiflugur bjóða upp á frábær túpuefni í fluguhnýtingar frá Frödinflies, Veniard og Stonfo. Þau eiga það sameiginleg að vera hæfilega stíf og þægileg notkunar. Plastið er fremur deigt og brotnar því ekki að sama skapi og mörg önnur túpuefni.
FLUGUHNýtingaþræðir
Frábært úrval af hnýtingaþráðum
Hnýtingaþræðir þurfa að vera í samræmi við þá flugu sem skal hnýtt hverju sinni. Veiðiflugur bjóða einstakt úrval af hnýtingaþráðum í fjölmörgum litum, þykktum og að ólíkum styrkleika. Á meðal þráða eru Nano Silk, Classic Waxed, Spyder Thread og Georgio Benecchi frá Frödinflies.
FLUGUHNÝTingakrókar
Það skiptir miklu máli að velja vandaða og sterka hnýtingakróka, enda fátt leiðinlegra en að missa fisk sem brýtur eða beygir krókinn. Yfirleitt stjórnast gæði fluguhnýtingakróka af verði og því skildi varast að kaupa þá allra ódýrustu. Veiðiflugur er dreifingaraðili Kamasan krókanna á Íslandi sem veiðimenn hafa treyst í áratugi. Fyrirtækið framleiðir margar útfærslur af hnýtinga- og túpukrókum á afar sanngjörnu verði. Þá bjóða Veiðiflugur nú einnig Mustad og Partridge króka í nokkrum gerðum.
Viltu læra FLUGUHNÝTINGAR?
Vilji er allt sem þarf, já og nokkur tæki og tól. Í grunninn eru það þrjú atriði sem eru nauðsynleg til að byrja fluguhnýtingar: hnýtingaþvinga (e. vise), keflishalda og hnýtingaskæri. Þá þarf að útvega það efni sem nota skal í fluguna. Tvinni, flugulakk, krókur eða túpuefni er alla jafnan það nauðsynlegasta auk þess efnis sem hnýtt skal úr. Kíktu í heimsókn í Veiðiflugur á Langholtsvegi 111 og við aðstoðum þig við val á fluguhnýtingagræjum. Í leiðinni getu þú fengið góð ráð, kennslu og jafnvel hnýtt eina eða tvær flugur. Það er ekkert mál að hefjast handa, settu þig bara í spor þess sem lærði að hnýta fyrir tíma samfélagsmiðla og Youtube! Engar afsakanir – kíktu í kaffi.
Morsetto Flylab Hnýtingaþvinga 















































































