Loop GDC sökklína 1/2 er skothaus sem er frá 10,1 – 11,6 metra langur eftir línuþyngd. Sökkhraði hans er 1 meter á hverjar 13 sekúndur. Skothausinn er með tilbúnum lykkjum á báðum endum sem auðveldar veiðimönnum að skipta um línuhausa þegar svo ber undir. Með honum er einfalt að ná fram þröngum línubug sem kemur sér vel í krefjandi aðstæðum, s.s. í miklum vindi. Loop GDC ber allar flugustærðir og gerðir, allt frá hefðbundnum þríkrækjum upp í þungar túpur.
GDC sekkur með 45° halla í vatninu, þannig að aftari hluti haussins ristir hærra í vatninu en fremri hlutinn (þ.e. sá hluti sem taumurinn er festur við). Þessi hönnun bætir línustjórnun og gerir veiðimanni auðveldara fyrir að ná línunni upp úr vatninu þegar byrjað er á nýju kasti.