River Ops Vöðluskór

River Ops eru einstakir vöðluskór úr smiðju Korkers, hannaðir til að standast gríðarmikla notkun. Þeir eru sérstaklega hugsaðir fyrir þá sem verja mörgum dögum á sumri við veiðar. River Ops eru í raun hinir fullkomnu skór fyrir leiðsögumenn og aðra þá sem kjósa áreiðanleika og stöðuleika.

52.995kr.
34.447kr.

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

River Ops eru einstakir vöðluskór úr smiðju Korkers, hannaðir til að standast gríðarmikla notkun. Þeir eru sérstaklega hugsaðir fyrir þá sem verja mörgum dögum á sumri við veiðar. River Ops eru í raun hinir fullkomnu skór fyrir leiðsögumenn og aðra þá sem kjósa áreiðanleika og stöðuleika. Þeir eru í algjörum sérflokki þegar kemur að þægindum og endingu, en til marks um það fylgir þeim tveggja ára ábyrgð frá kaupdegi.

Þessi einstaka ending River Ops skónna næst fram með nýrri tækni sem kallast Exo-Tec™. Skórnir eru ekki saumaðir á hefðbundinn hátt heldur eru þeir mótaðir í framleiðsluferlinu án þess að saumar komi nærri. Efnislög eru samsett með hinni nýju bræðslutækni sem kemur í veg fyrir að álagsfletir trosni upp. En þrátt fyrir að skórinn þoli mikið slit, s.s. vegna grjóts eða kletta, er hann ákaflega sveigjanlegur og hegðar sér eins og hver annar íþróttaskór.

Hæll skónna er sérstaklega fóðraður og veitir framúrskarandi stuðning við ökkla sem dregur úr líkum á misstigi. River Ops eru búnir innra frárennsliskerfi sem gerir það að verkum að vatn á greiða leið úr skónum. Þannig má segja að þeir haldist ávallt léttir þegar á árbakkann er komið. Þá eru skórnir búnir frábæru endurhönnuðu reimakerfi með sérstökum lás svo auðvelt er að stilla stífleika skónna hverju sinni. Líkt og aðrir skór frá Korkers eru River Ops búnir OmniTrax-sólakerfinu. Þeim fylgir tvær gerðir af Vibram® gúmmísólum, annarsvegar negldum og hinsvegar ónegldum.

Korkers hefur í yfir 50 ár hannað og þróað skóbúnað fyrir útivistarfólk. Korkers framleiðir nokkrar gerðir af vöðluskóm sem allar eiga það sameiginlegt að vera einstaklega hentugar, þægilegar og öruggar. Allir skór frá Korkers koma með einkaleyfisvörðum búnaði sem nefnist OmniTrax og byggir á þeirri hugmyndafræði að nota sama búnað í mismunandi aðstæðum. Með OmniTrax má skipta út sóla/botni vöðluskónna eftir því hvar er veitt og hvernig undirlagið er.