Patagonia Swiftcurrent vöðlupakkinn er virklega vandaður og hentar konum í fjölbreyttan veiðiskap. Hann inniheldur Swiftcurrent öndunarvöðlur og Forra vöðlsukó með vibram-sóla. Vöðlurnar eru sérstaklega hannaðar fyrir veiðikonur. Þær eru gerðar eru úr fjögurra laga vatnsheldu öndunarefni sem nefnist H2No® sem er afar slitsterkt og þjált. Swiftcurrent eru búnar ýmsum þægindum en mittishæð þeirra má stilla eftir þörfum notandans með þar til gerðum EZ-lásum. Axlarböndum má breyta með einu handtaki og unnt að færa efri hlutann frá bringu að mitti. Sú hönnun er einkennismerki Patagonia sem oft getur komið sér vel, sérstaklega á góðviðrisdögum þegar heilar vöðlur eru óþarfar. Vöðlurnar má m.ö.o. nota á hefðbundinn hátt en einnig sem mittisvöðlur. Þá má losa vöðlurnar að aftan með smellu, sem nýtist þegar farið er í þær og úr, en ekki síður þegar nota á vöðlurnar sem mittisvöðlur.
Á hvorri hlið vaðlanna eru fóðraðir vasar til að hvíla eða verma hendur. Framan á þeim er rúmgóður vasi með vatnsvörðum rennilás. Að innanverðu er vatnsheldur poki sem velta má fram, og er ætlaður undir síma og bíllykla. Vöðlurnar eru styrktar í klofi og skálmum svo veiðikonur þurfi ekki að hafa áhyggjur af saumum þegar gengið er um brattlendi eða í öðrum krefjandi aðstæðum. Þá eru vöðlusokkarnir sérstaklega hannaðir til að standast mikið álag en þeir eru ekki framleiddir úr hefðbundnu neoprene-efni. Þess í stað notar Patagonia blöndu af gúmmíefnum, samskonar þeim sem notuð eru í blautbúninga. Á hnjám vaðlanna eru hnépúðar til aukinna þæginda þegar kropið er. Vöðlunum fylgir gott teygjanlegt belti.
Forra vöðluskórnir eru frá Patagonia. Þeir eru hannaðir í fjölbreytta veiði og framleiddir úr fljótþornandi efnum. Vöðluskórnir eru með Vibram® gúmmísóla sem veitir mikið grip í flestum aðstæðum. Þeir reimast hátt og veita traustan öklastuðning. Táin sérstaklega styrkt og eru reimarnar afar slitsterkar. Stilla má skóna eftir hentugleika, svo stuðningurinn sé eins og hentar hverju sinni.
Guideline Elevation Einhendupakki 9‘ #4 





























