Patagonia W’s Swiftcurrent Dömuvöðlur

Swiftcurrent eru glæsilegar kvenvöðlur frá Patagonia sem framleiddar eru úr fjögurra laga vatnsheldu öndunarefni sem nefnist H2No®, en það hefur Patagonia prófað og þróað undanfarinn áratug. Efnið er afar slitsterkt og þjált sem gerir vöðlurnar einkar endingargóðar og um leið þægilegar.

89.900kr.

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar
SKOÐA STÆRÐATÖFLU

Patagonia Swiftcurrent vöðlurnar eru sérstaklega hannaðar fyrir veiðikonur. Þær eru gerðar eru úr fjögurra laga vatnsheldu öndunarefni sem nefnist H2No® sem er afar slitsterkt og þjált. Swiftcurrent eru búnar ýmsum þægindum en mittishæð þeirra má stilla eftir þörfum notandans með þar til gerðum EZ-lásum. Axlarböndum má breyta með einu handtaki og unnt að færa efri hlutann frá bringu að mitti. Sú hönnun er einkennismerki Patagonia sem oft getur komið sér vel, sérstaklega á góðviðrisdögum þegar heilar vöðlur eru óþarfar. Vöðlurnar má m.ö.o. nota á hefðbundinn hátt en einnig sem mittisvöðlur. Þá má losa vöðlurnar að aftan með smellu, sem nýtist þegar farið er í þær og úr, en ekki síður þegar nota á vöðlurnar sem mittisvöðlur.

Á hvorri hlið vaðlanna eru fóðraðir vasar til að hvíla eða verma hendur. Framan á þeim er rúmgóður vasi með vatnsvörðum rennilás. Að innanverðu er vatnsheldur poki sem velta má fram, og er ætlaður undir síma og bíllykla. Vöðlurnar eru styrktar í klofi og skálmum svo veiðikonur þurfi ekki að hafa áhyggjur af saumum þegar gengið er um brattlendi eða í öðrum krefjandi aðstæðum. Þá eru vöðlusokkarnir sérstaklega hannaðir til að standast mikið álag en þeir eru ekki framleiddir úr hefðbundnu neoprene-efni. Þess í stað notar Patagonia blöndu af gúmmíefnum, samskonar þeim sem notuð eru í blautbúninga. Á hnjám vaðlanna eru hnépúðar til aukinna þæginda þegar kropið er. Vöðlunum fylgir gott teygjanlegt belti.

Patagonia stígur sífellt fleiri skref í átt að sjálfbærari framleiðslu, enda fyrirtækið víðast hvar verið leiðandi afl í umhverfismálum. Í Swiftcurrent kvenvöðlunum eru a.m.k. 70% efnisins endurunnið, sem kemur síst niður á gæðum og endingu.