Patagonia Swiftcurrent Exp. Vöðlupakki II

Sterkur vöðlupakki með Swiftcurrent Expedition vöðlum frá Patagonia og vönduðum vöðluskóm frá Korkers. Vöðlurnar eru stolt Patagonia, gerðar fyrir krefjandi aðstæður og langa veiðidaga. Í pakkanum er val á milli Darkhorse eða Devils Canyon vöðluskóa.

149.900kr.

Patagonia Swiftcurrent Expedition Vöðlur

Darkhorse Vöðluskór

Devils Canyon Vöðluskór

Patagonia Swiftcurrent Expedition Vöðlupakki II er vandaður pakki þar sem saman fara slitsterkar vöðlur frá Patagonia og öflugir vöðluskór frá Korkers. Swiftcurrent Expedition eru hannaðar fyrir mikla notkun og erfiðar aðstæður, hvort sem veitt er í köldu vatni, gengið yfir gróft land eða staðið lengi við ána.

Vöðlurnar eru úr 4-laga H2No™ Performance efni úr endurunnu pólýester. Efri hlutinn er léttari og þægilegur í notkun en neðri hlutinn er styrktur með þyngra efni þar sem mest reynir á. DWR-áferðin hrindir frá sér vatni og er án PFC/PFAS-efna. Vöðlurnar eru jafnframt framleiddar í Fair Trade Certified™ verksmiðju.

Sniðið hefur verið endurbætt til að auka hreyfigetu og þægindi. Formsaumaðir fætur, sérhannaður klofsaumur og fjarlægjanlegir hnépúðar gera vöðlurnar liprar þrátt fyrir sterka uppbyggingu. Í stærri stærðum hefur neðri hluti fóta verið víkkaður lítillega til að auðvelda hreyfingu og gera einfaldara að komast í og úr.

Með stillanlegum axlaböndum og smellum má færa efri hluta vaðlanna niður og nota þær sem mittisvöðlur þegar aðstæður leyfa. Secure Stretch™ vöðlubelti og lykkjur að framan og aftan halda öllu stöðugu og þægilegu yfir daginn.

Geymsluplássið er vel hugsað. Að innan er vatnsheldur vasi fyrir verðmæti, auk tveggja teygjanlegra vasa fyrir smáhluti. Að utan er stór brjóstvasi með vatnsfráhrindandi rennilás og fóðraður vasi til að verma hendur. Festingar fyrir veiðitól og þurrkunarlykkja á baki auka notagildið.

Sokkarnir eru mótaðir fyrir vinstri og hægri fót og veita aukin þægindi í vöðluskóm. Slitvarnarhlífar við ökklasvæði draga úr núningssliti og styrkja vöðlurnar þar sem álagið er mikið. Þetta eru vöðlur sem eru byggðar til að endast og henta vel þegar búnaðurinn þarf að standa undir mikilli notkun.

Í pakkanum er val á milli tveggja vöðluskóa frá Korkers. Devils Canyon eru léttir, þægilegir og falla vel að fæti. Þeir veita góðan ökklastuðning, þorna fljótt og frárennslisrásir hleypa vatni greiðlega úr skónum þegar komið er upp á bakka.

Darkhorse skórnir eru öflugri í uppbyggingu og veita aukinn stuðning í krefjandi aðstæðum. Þeir eru með 3PFS-kerfi sem skorðar fótinn vel og styður við ökkla og liðbönd. Báðir skórnir eru með M4 BOA® vírakerfi og útskiptanlegum OmniTrax-sólum þar sem fylgja bæði gúmmí- og filtbotnar.