Patagonia W’s Swiftcurrent Dömuvöðlupakki II

Stílhreinn en vandaður vöðlupakki fyrir veiðikonur sem samanstendur af Swiftcurrent kvenvöðlum frá Patagonia og vöðluskóm frá Korkers með útskiptanlegum botnum. Vöðlurnar eru framleiddar úr fjögurra laga vatnsheldu öndunarefni sem nefnist H2No®, en það hefur Patagonia prófað og þróað undanfarinn áratug. Efnið er slitsterkt og þjált sem gerir vöðlurnar endingargóðar og um leið þægilegar.

117.900kr.

Patagonia W's Swiftcurrent Dömuvöðlur

Devils Canyon Vöðluskór

Darkhorse Vöðluskór (Dömu)

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Swiftcurrent vöðlurnar eru hannaðar með þarfir veiðikvenna í huga. Þær eru gerðar eru úr fjögurra laga vatnsheldu öndunarefni sem nefnist H2No® sem er afar slitsterkt og þjált. Swiftcurrent eru búnar ýmsum þægindum en mittishæð þeirra má stilla eftir þörfum notandans með þar til gerðum EZ-lásum. Axlarböndum má breyta með einu handtaki og unnt að færa efri hlutann frá bringu að mitti. Sú hönnun er einkennismerki Patagonia sem oft getur komið sér vel, sérstaklega á góðviðrisdögum þegar heilar vöðlur eru óþarfar. Vöðlurnar má m.ö.o. nota á hefðbundinn hátt en einnig sem mittisvöðlur. Þá má losa vöðlurnar að aftan með smellu, sem nýtist þegar farið er í þær og úr, en ekki síður þegar nota á vöðlurnar sem mittisvöðlur.

Á hvorri hlið vaðlanna eru fóðraðir vasar til að hvíla eða verma hendur. Framan á þeim er rúmgóður vasi með vatnsvörðum rennilás. Að innanverðu er vatnsheldur poki sem velta má fram, og er ætlaður undir síma og bíllykla. Vöðlurnar eru styrktar í klofi og skálmum svo veiðikonur þurfi ekki að hafa áhyggjur af saumum þegar gengið er um brattlendi eða í öðrum krefjandi aðstæðum. Þá eru vöðlusokkarnir sérstaklega hannaðir til að standast mikið álag en þeir eru ekki framleiddir úr hefðbundnu neoprene-efni. Þess í stað notar Patagonia blöndu af gúmmíefnum, samskonar þeim sem notuð eru í blautbúninga. Á hnjám vaðlanna eru hnépúðar til aukinna þæginda þegar kropið er. Vöðlunum fylgir gott teygjanlegt belti.

Vöðlunum fylgja vandaðir skór frá Korkers, en hægt er að velja á milli Devils Canyon eða Darkhorse dömuskónna. Devils Canyon eru ákaflega léttir vöðluskór sem falla vel að fótunum. Þeir eru með góðan ökklastuðning og eru fljótir að þorna. Sérstakar rásir tryggja að vatn eigi greiða leið úr skónum þegar á bakkann er komið. Hæll og tá eru sérstaklega styrkt en skórinn sjálfur er framleiddur úr mjúku gúmmíefni sem aðlagar sig að fótum notandans.

Darkhorse dömuskórnir eru uppbyggðir á svipaðan hátt og Devils Canyon. Þeir eru umfram þá búnir 3PFS-kerfi, sem eykur þægindi til muna og styður um leið við ökkla og liðbönd. Hællinn er klæddur þar til gerðum stuðningspúðum sem skorða fótinn örugglega. Báðir skórnir eru með M2 Boa® vírakerfi sem gerir reimarnar óþarfar og eykur mjög þægindi við veiðar en ekki síður við að fara í þá og úr. Þá er skórnir með útskiptanlegum OmniTrax-sólum, en þeim fylgir bæði gúmmí- og filtbotn.