Laxá Mittisvöðlupakki II

Hentugur vöðlupakki fyrir þau sem ganga mikið við veiðar og þurfa ekki að vaða djúpt. Hann inniheldur Laxá mittisvöðlur og vöðluskó frá Korkers eða Guideline. Vöðlurnar eru framleiddar eru úr vönduðu þriggja laga nælonefni. Þær eru slitsterkar, með góðri vatnsvörn og hrinda um leið frá sér óhreinindum.

79.900kr.

Laxá mittisvöðlur

Alta NGx Vibram Vöðluskór

Darkhorse Vöðluskór

Devils Canyon Vöðluskór

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Vöðlupakki sem samanstendur af mittisvöðlum frá Guideline sem framleiddar eru úr þriggja laga nælonefni og vönduðum vöðluskóm frá Korkers eða Guideline. Vöðlurnar eru slitsterkar, með góðri vatnsvörn og hrinda um leið frá sér óhreinindum. Snið vaðlanna er úthugsað, hannað þannig að þær sitji sem best á notandanum. Bæði belti og mitti er teygjanlegt til auð auka þægindi og hreyfigetu. Mittisvöðlurnar eru með tvo vasa að framan með vatnsheldum rennilásum. D-lykkja er á beltinu sem hugsuð er undir taumaklippur og eða losunartöng. Þá eru á vöðlunum rennd buxnaklauf sem auðveldar veiðimönnum að fara í þær og úr. Sandhlífarnar og sokkarnir eru framleiddar úr sterku neoprene-efni sem tryggir betri endingu.

Devils Canyon eru ákaflega léttir vöðluskór sem falla vel að fótunum. Þeir eru með góðan ökklastuðning, þeir eru fljótir að þorna en sérstakar rásir tryggja að vatn eigi greiða leið úr skónum þegar á bakkann er komið. Hæll og tá eru sérstaklega styrkt en skórinn sjálfur er framleiddur úr mjúku gúmmíefni sem aðlagar sig að fótum notenda.

Darkhorse skórinir eru uppbyggðir á svipaðan hátt og Devils Canyon. Þeir eru þó búnir sérstöku 3PFS-kerfi, sem eykur þægindi til muna og styður um leið við ökkla og liðbönd. Hællinn er klæddur þar til gerðum stuðningspúðum sem skorða fótinn örugglega. Báðir Korkers skórnir eru með M2 Boa® vírakerfi sem gerir reimarnar óþarfar og eykur mjög þægindi við veiðar en ekki síður við að fara í þá og úr. Þá er skórnir með útskiptanlegum OmniTrax-sólum, en þeim fylgir bæði gúmmí- og filtbotn.

Alta NGx vöðluskórnir frá Guideline eru með Vibram® Idrogrip gúmmísóla sem býður upp á þægindi, stöðugleika og langa endingu. Miðsólinn ásamt stífu gerviefni sjá til þess að veita frábæran stuðning í grófu landslagi. Skórnir eru sérstaklega styrktir og þola því betur hnjask frá hvössum grjótum þegar vaðið er.