Viðskiptavinir geta valið á milli tveggja vöðluskóa í þessum frábæra pakka. Annarsvegar HD Vibram frá Guideline og hinsvegar River Ops Boa frá Korkers. Í pakkanum eru Laxá Zip rennilásavöðlurnar sem framleiddar eru úr 4-laga álagsþolnu nælonefni. Filma þeirra er úr vistvænni efnum og meðhöndlaðar þannig að þær hrindi frá sér vatni og óhreinindum. Saumar þeirra eru lokaðir með því sem nefnist Sidewinder, en tæknin eykur styrk vaðlanna og hreyfigetu notandans.
Vatnsheldur TIZIP-rennilás er framan á vöðlunum, en hann býður upp á mikil þægindi við að komast í og úr vöðlunum. Tveir stórir brjóstvasar með lóðréttum rennilásum sitja ofarlega á brjóstsvæðinu. Á hliðum eru flísfóðraðir vasar til að verma hendurnar. Vöðlurnar eru með stillanlegum axlaböndum. Vöðlubeltið er teygjanlegt og situr í beltislykkju að aftan. Sandhlífar eru úr álagsþolnu efni með gúmmístyrktri teygju að neðan sem rennur yfir skóna. Sokkarnir eru úr þéttu neophrene efni og eru aðlagaðir að hvorum fæti.
River Ops BOA eru án nokkurs vafa tæknilegustu og endingarbestu vöðluskórnir frá Korkers, með hinu vinsæla BOA-vírakerfi. Þeir eru hannaðir til að standast gríðarmikla notkun og þola mikið hnjask. Skórnir eru framleiddir sérstaklega fyrir þá sem verja mörgum dögum á sumri við veiðar. River Ops BOA eru fullkomnir fyrir leiðsögumenn og aðra þá veiðimenn sem kjósa áreiðanleika og stöðuleika. Vöðluskórnir eru í sérflokki þegar kemur að þægindum og endingu, en til marks um það fylgir þeim tveggja ára ábyrgð frá kaupdegi.
Guideline HD (Heavy Duty) vöðluskórnir eru hannaðir til notkunar við erfiðustu veiðiaðstæður. Vegna aukinnar hæðar, þykkari bólstrunar og mikils stífleika í efninu hafa skórnir aukinn stöðugleika sem hjálpar þegar vaðið er á grófum árbotni og í ójöfnu landslagi.
Afar vandaður vöðlupakki fyrir alla veiðimenn.
Costa Grand Catalina Veiðigleraugu 580G
Costa Reefton Pro Veiðigleraugu 580G
Stonfo Synt Oval Tape #1
Costa Lido Veiðigleraugu 580G
Costa Tailfin Veiðigleraugu 580G
Guideline Multi Grip Veiðiháfur L
Darkhorse Vöðluskór (Dömu) - #9/42
Costa King Tide 6 Veiðigleraugu 580G
Costa King Tide 8 Veiðigleraugu 580G
McLean Weigh-Net Small (M112) - Silungaháfur með Vigt
McLean Weigh-Net Large (M110) - Silungaháfur með Innbyggðri Vigt
Curve Silungaháfur
Woody Silungaháfur
Loop Z1 Tvíhendupakki 12,4' #7
Loop Z1 Einhendupakki 9,6' #7 



























