Costa King Tide 6 Veiðigleraugu 580G

Heiti: King Tide 6
Umgjörð: Black Pearl
Litur linsu: Sunrise Silver Mirror
Efni linsu: Polarized 580G
Stærð: XL

49.900kr.

Vara uppseld

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

King Tide eru einhver bestu veiðigleraugu sem Costa hefur framleitt. Þau eru hönnuð fyrir leiðsögumenn og aðra veiðimenn sem gera miklar kröfur til búnaðarins. Á hliðum gleraugnanna eru færanlegar hlífar sem varna því að sólarljós komist að augunum. Linsan er einstaklega skýr og gefur notandanum eins mikið forskot og mögulegt er. Hönnun umgjarðarinnar er á þann veg að móðumyndun er svo gott sem engin og sviti helst frá augunum. Þá haldast gleraugun á sínum stað, jafnvel þótt húðin sé blaut. King Tide færst í tveimur útfærslum: King Tide 8 eru í stærð L og King Tide 6 í stærð XL.

Ef þú ert í leit af hinum fullkomnu veiðigleraugum, þá skaltu prófa King Tide!

Costa veiðigleraugu

Costa Del Mar er einn stærsti sólgleraugnaframleiðandi í heiminum í dag – og ekki að ástæðulausu.
Öll veiðigleraugu sem fyrirtækir framleiðir veita fullkomna vörn gegn útfjólubláum geislum sólarinnar. Costa er með einkaleyfi á framleiðslu sinni sem nefnist Costa 580®

99,9%

Polaroid virkni

580® punktar

Einstök skerpa

C-Wall ®

Aukið rispu- og blettaþol

580G/P

Hágæða gler- og plaslinsur

Fullkomin vörn

Polaroid-linsur (e. polarized lenses) eru sérlega mikilvægar fyrir alla þá sem verja tíma sínum utandyra – ekki hvað síst fyrir veiðimenn þar sem sólarljós endurkastast af yfirborði vatns.

Costa linsur eru með 99,9% polaroid virkni       

+ Besta tækni sem fáanleg er í veiðigleraugum
+ Veitir augunum fullkomna vörn fyrir sólargeislum
+ Costa framleiðir aðeins polaroid gleraugu

Hvernig virka Costa 580®?

Linsan síar út sterka gula geisla sólarinnar. Með því móti greina augun betri liti, birtuskil verða eðlilegri og sjónin skarpari.Til einföldunar má segja að Costa gleraugun haldi slæmu birtunni frá augunum og góðri birtu að þeim.

Hvernig gagnast tæknin?

Costa gleraugun sía út glampa af völdum sólarljóss á vatni svo augun greina mun betur það sem er undir yfirborðinu. Þannig getur veiðimaður séð botn árinnar langt um skýrar en ella. Með betri tækni nær Costa þeim árangri að framleiða skörpustu veiðigleraugu í heimi.

En Costa eru þó ekki bara veiðigleraugu því þau nýtast einnig sem sólgleraugu dagsdaglega. Costa gleraugun eru fáanleg með plastlinsum og glerlinsum í mörgum útfærslum.