Black Hole Duffel er sterkbyggð 55 lítra taska frá Patagonia, sem þú getur reitt þig á hvenær sem er og hvar sem er. Í henni er nóg pláss til að skipuleggja búnaðinn fyrir helgarfríið, ferðalagið eða veiðiferðina. Aðalhólfið opnast vel með rennilás að ofan fyrir skjótan aðgang að innihaldinu. Á töskunni eru góð handföng auk axlarbanda, svo unnt sé að bera töskuna á bakinu þegar svo ber undir.
Hægt er að geyma aðalhlutann í innri vasa til að auðvelda geymslu. Bólstraður botn töskunnar verndar innihaldið fyrir ósléttu landslagi og erfiðum aðstæðum. Taskan eru framleidd úr 100% endurunnu pólýesterefni sem er einstaklega endingargott og veðurþolið. Stærð töskunnar er 68 x 40 x 30 cm.