Driva Zip Vöðlupakki II hentar vel veiðimönnum sem vilja áreiðanlegan búnað sem nýtist í fjölbreyttum aðstæðum. Vöðlurnar eru gerðar úr fjórum lögum af endurunnu pólýester efni sem sameinar góða endingu og þægilega áferð. Þær eru sérstaklega hentugar fyrir fjölbreyttar veiðar þar sem sniðið gefur góðan liðleika yfir hné og setsvæði.
Vöðlurnar eru búnar Scale™ PRO himnu sem skilar góðri vatnsheldni og öndun. Efnið er bluesign® vottað og án PFAS-efna. Framan á þeim er TiZip® MasterSeal rennilás sem einfaldar notkunina og eykur þægindi.
Geymslumöguleikar eru vel útfærðir með tveimur vatnsfráhrindandi brjóstvösum með rennilásum og hlýjum vösum fyrir hendur þar fyrir neðan. Að innan er renndur vasi og festiflötur fyrir flugur. Aftan á er D-lykkja fyrir háf og festingar fyrir aukahluti.
Axlaböndin eru sveigjanleg og auðveld í stillingu og beltið heldur vel án þess að vera stíft. Sokkarnir eru úr Comfort Plus™ neoprene efni og mótaðir til að sitja vel á fæti. Neðst eru hlífar sem falla þétt að skónum og halda óhreinindum úti.
Í pakkanum er val á milli tveggja ólíkra vöðluskóa. Chrome Lite skórnir frá Korkers eru léttir og henta vel fyrir þá sem vilja halda búnaðinum liprum og ganga mikið. Alta NGx skórnir frá Guideline eru þyngri í sniði en veita meiri stuðning og stöðugleika, með Vibram® Idrogrip sóla sem grípur vel á sleipu undirlagi.
Nám REN 11,6' #6
Monomaster Taumagleypir
Guideline NT11 Salmon 13,9' #8/9
Fishpond Switchback Wading System 2.0 - Mittistaska
Nám REN 9,9' #7
Guideline Rivolt 11' #7/8
Loop 7X 11,6' #7
Loop Trak 13' #7
Nám REN 9' #5 









































