Laxá Mittisvöðlupakki III er góður kostur þegar áherslan er á léttleika, hreyfigetu og góðan stuðning í skónum. Laxá mittisvöðlurnar eru framleiddar úr þriggja laga nælonefni sem er slitsterkt, með góða vatnsvörn og hrindir frá sér óhreinindum. Þær koma sér sérstaklega vel á hlýrri dögum, í grynnra vatni eða þegar veiðin kallar á einfaldari og liprari búnað.
Mittisvöðlurnar eru sniðnar þannig að þær sitji vel án þess að þrengja. Teygjanlegt mitti og stillanlegt belti hjálpa til við að laga þær að líkama og klæðnaði, en halda um leið góðri hreyfigetu. Að framan eru tveir vasar með vatnsheldum rennilásum fyrir smáhluti og veiðidót. D-lykkja á beltinu nýtist fyrir taumaklippur, losunartöng eða annan aukabúnað.
Rennd buxnaklauf gerir vöðlurnar þægilegri í notkun yfir daginn. Sokkarnir og sandhlífarnar eru úr sterku neoprene efni sem þolir vel notkun, og sandhlífarnar falla vel yfir vöðluskó til að halda sandi og smásteinum frá.
Í pakkanum er val á milli tveggja vöðluskóa frá Korkers. Devils Canyon eru léttir og þægilegir skór sem falla vel að fæti og veita góðan ökklastuðning. Þeir eru með styrktri tá og hæl og frárennslisrásum sem hleypa vatni fljótt úr skónum þegar komið er upp á bakka.
Darkhorse skórnir eru sterkari í uppbyggingu og veita meiri stuðning við krefjandi aðstæður. Þeir eru með 3PFS-kerfi sem skorðar fótinn vel og styður við ökkla og liðbönd. Báðir skórnir eru með M4 BOA® vírakerfi og útskiptanlegum OmniTrax-sólum þar sem fylgja bæði gúmmí- og filtbotnar.
Guideline Embrace Einhendupakki 10,6' #3
Guideline Rivolt 9' #7
Tacky Pescador Medium - Clear- Burnt Orange Flugubox
Leech Anti Fog - Móðuvörn
Loon Deep Soft Weight - Sökkefni
One80 Hjálmaljós
Úr búri náttúrunnar
Patagonia Take a Stand N. Navy Derhúfa
Fishpond High And Dry - Derhúfa fyrir börn
Loop Evotec G5 6/8
Tacky Pescador Leaflet- Large- Dynamic Foam Millispjald
Patagonia Stealth Switch Pack 9L Veiðitaska - B. Brown
Loop Fly Rods & Reels Derhúfa
Loon Amadou Þurrfluguklútur
Patagonia Stealth Switch Pack 5L Veiðitaska - R. Green
Patagonia Broadcaster Hat R. Green Derhúfa
Þræðari Elite 1,4 mm
Fishpond Swivel Áhaldagormur 



































