Driva Zip Vöðlupakki III er ætlaður veiðimönnum sem gera meiri kröfur til endingar og stöðugleika í búnaði sínum. Vöðlurnar eru framleiddar úr fjögurra laga endurunnu pólýester efni sem sameinar slitstyrk og þægilega áferð. Þær henta vel í langa daga við veiðar þar sem mikið er gengið, enda sniðið mótað til að gefa góða hreyfigetu.
Scale™ PRO himnan tryggir góða vatnsheldni og öndun og efni vöðlanna eru bluesign® vottuð og án PFAS-efna. TiZip® MasterSeal rennilásinn að framan einfaldar notkun og gerir auðvelt að fara í og úr vöðlunum.
Á vöðlunum eru tveir rúmgóðir YKK AquaGuard® brjóstvasar með rennilásum fyrir flugubox og annað veiðidót. Fyrir neðan eru hlýir vasar til að verma hendur. Að innan er renndur vasi og festiflötur fyrir flugur, og á bakinu er D-lykkja fyrir háf. Axlaböndin eru teygjanleg og stillanleg og mittisbeltið heldur vel án þess að þrengja. Sokkarnir eru úr Comfort Plus™ neoprene efni og mótaðir fyrir hvorn fót. Neðst eru Hybrid Gravel Guard™ hlífar sem liggja þétt að og halda óhreinindum úti.
Í pakkanum er val á milli þriggja ólíkra vöðluskóa eftir því hvaða eiginleikar henta best. Guideline HD vöðluskórnir eru sterkbyggðir og hannaðir fyrir erfiðar aðstæður, með Vibram® Idrogrip sóla sem veitir gott grip á sleipu undirlagi og mikinn stöðugleika í grófu landslagi.
Devils Canyon skórnir frá Korkers eru léttari og liprari, með góðan ökklastuðning og frárennsliskerfi sem losar vatn fljótt úr skónum. Þeir henta vel fyrir fjölbreyttar aðstæður þar sem þægindi skipta máli.
Darkhorse skórnir eru öflugri í sniði og bjóða upp á aukinn stuðning. Þeir eru búnir 3PFS-kerfi sem styður við ökkla og liðbönd og eykur stöðugleika. Báðir Korkers skórnir eru með M4 BOA® vírakerfi og útskiptanlegum OmniTrax-sólum þar sem fylgja bæði gúmmí- og filtbotnar.
Fishpond Arrowhead Áhaldagormur Svartur
Guideline Forceps - Spring Creek 5" - Losunartöng 















































