Laxá Vöðlupakki III er vel útbúinn pakki fyrir veiðimenn sem leggja áherslu á áreiðanleika og þægindi í krefjandi aðstæðum. Laxá 2.0 vöðlurnar eru framleiddar úr slitsterku 4-laga nælonefni sem er meðhöndlað til að hrinda frá sér vatni og óhreinindum. Saumar eru lokaðir með Sidewinder-tækni sem eykur bæði styrk og sveigjanleika og skilar sér í betri hreyfigetu við veiðar.
Vöðlurnar eru hannaðar með notagildi í huga. Tveir stórir renndir brjóstvasar rúma flugubox og annað veiðidót, auk þess sem tveir fóðraðir vasar eru til að verma hendur. Axlarólar og vöðlubelti eru stillanleg og úr teygjanlegu efni sem tryggir góða aðlögun að líkamanum. Sandhlífar með innfelldri teygju halda vel yfir skónum og neoprene sokkar eru mótaðir fyrir hægri og vinstri fót til aukinna þæginda.
Í pakkanum er val á milli tveggja vandaðra vöðluskóa frá Korkers. Devils Canyon skórnir eru léttir og þægilegir, falla vel að fæti og veita góðan ökklastuðning. Þeir eru úr slitsterku efni sem þornar hratt og eru með frárennslisrásum sem hleypa vatni fljótt út úr skónum.
Darkhorse skórnir eru sterkbyggðir og bjóða upp á aukinn stuðning. Þeir eru búnir 3PFS-kerfi sem styður við ökkla og liðbönd og eykur stöðugleika. Báðir skórnir eru með M4 BOA® vírakerfi sem gerir auðvelt að herða og losa þá, auk þess sem þeir eru með útskiptanlegum OmniTrax-sólum þar sem fylgja bæði gúmmí- og filtbotnar.
Guideline Embrace Einhendupakki 10,6' #3
Guideline Rivolt 9' #7
Tacky Pescador Medium - Clear- Burnt Orange Flugubox
Leech Anti Fog - Móðuvörn
Loon Deep Soft Weight - Sökkefni
One80 Hjálmaljós
Úr búri náttúrunnar
Patagonia Take a Stand N. Navy Derhúfa
Fishpond High And Dry - Derhúfa fyrir börn
Loop Evotec G5 6/8
Tacky Pescador Leaflet- Large- Dynamic Foam Millispjald
Patagonia Stealth Switch Pack 9L Veiðitaska - B. Brown
Loop Fly Rods & Reels Derhúfa
Loon Amadou Þurrfluguklútur
Patagonia Stealth Switch Pack 5L Veiðitaska - R. Green
Patagonia Broadcaster Hat R. Green Derhúfa
Þræðari Elite 1,4 mm
Fishpond Swivel Áhaldagormur 



































