Nám REN 11,6′ #6

> Vönduð stöng í nettan veiðiskap
> Hentar í litlar og meðalstórar ár
> Mikil tilfinning og næmni í gegnum stöngina
> Vegur aðeins 151 gr.

169.900kr.

Á lager

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Afar skemmtileg switch-stöng í nettan veiðiskap. Þetta er stöng sem er raunverulega fislétt og fíngerð tvíhenda, en fellur í flokk switch-stanga. Hún hentar í litlar og meðalstórar ár bæði þegar egnt er fyrir lax og silung. Í stönginni er mikil tilfinning og næmni, því er sannkallaður draumur að berjast við fiska á þessa nettu græju.

REN eru vandaðar fluguveiðistangir úr smiðju Nám. Þær eru gerðar úr einstakri grafítblöndu með ótrúlegum togstyrk. Þetta gerir það mögulegt að framleiða stangirnar með mjög léttum, fíngerðum topp sem sameinar nákvæmni og gríðarlega næmni. Óframsækin miðlungs djúp hleðsla í miðhluta stanganna veitir góða tilfinningu í köstunum. Niðurstaðan er mikill línuhraði án þess að fórna fínleikanum. Þegar á fyrstu metrum línunnar er stöngin hlaðin, sem gerir veiði á stuttu færi enn ánægjulegri.

Þunnur stangardúkurinn (e. blank) úr nútíma koltrefjum sýnir sig í hefðbundinni dökkbrúnni áferð stanganna. Þær eru með ofurléttum en sterkum lykkjum framleiddar úr títan. Handfangið er úr Delgado-korki í hæsta gæðaflokki. Hjólasætið er úr áli og rafhúðað með svartri áferð samkvæmt hefðbundinni skandinavískri hönnun.