Bullet+ er endurbætt útgáfa af Bullet-línunni sem hefur verið ein allra vinsælasta flotlína fyrir einhendur hjá Veiðiflugum undanfarin ár. Þessi nýja útgáfa svíkur engan – hún er enn betri en sú fyrri, með mýkri framsetningu og enn betri stjórn.
Þrátt fyrir stuttan haus (9,25 m) heldur línan góðu jafnvægi í lofti og skilar löngum og nákvæmum köstum með lágmarks áreynslu. Línan er sérstaklega heppileg til alhliða notkunar í íslenskum ám og hentar jafnt fyrir veltiköst sem hefðbundin fluguköst. Uppbygging haussins tryggir góða framsetningu fyrir allar tegundir flugna, allt frá þurrflugum upp í keilutúpur.
Helstu eiginleikar:
- Uppfærð útgáfa af vinsælustu einhendulínu Veiðiflugna
- Stuttur og öflugur haus sem hleðst hratt og skilar löngum köstum
- Mjög góð í þröngum aðstæðum þar sem pláss er takmarkað
- Góð frammjókkun og þægilegur meðhöndlunarhluti fyrir meiri stjórn og nákvæmni
- Grágrænn haus og skærgræn rennilína
- Lykkjur á báðum endum og ID-merki að framan
- Framleidd án skaðlegra efna
Tæknilýsing:
Línuþyngd | Hauslengd | Hausþyngd | Heildarlengd |
#5 | 9,25 m | 12 g | 30 m |
#6 | 9,25 m | 14 g | 30 m |
#7 | 9,25 m | 16 g | 30 m |
#8 | 9,25 m | 18 g | 30 m |
#9 | 9,25 m | 20 g | 30 m |