Aquanova Intermediate

Aquanova intermediate er hægsökkvandi flugulína á mjög hagstæðu verði. Línan hentar bæði í lax- og silungsveiði, hvorutveggja í straumvatn og stöðuvötn.

5.990kr.

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Aquanova intermediate er framþung flugulína sem má nota með púpum, straumflugum, smáflugum og meðalþungum túpum. Tefloni er blandað í kápu línunnar til að gera hana sleipari og til þess að hrinda frá sér óhreinindum. Línan beinsekkur, þ.e. sekkur fyrst og hraðast fremst, næst agninu. Sökkhraði hennar er 3,8 cm/sek til 5 cm/sek. Heildarlengd línunnar er 27 metrar.

Aquanova-línurnar eru framleiddar af kanadíska fyrirtækinu Norhern Sport. Meginstarfsemi Northern Sport hefur falist í framleiðslu á flugulínum sem seldar eru undir merkjum annarra fyrirtækja um allan heim, en minni áhersla hefur verið lögð í sölu á línum undir eigin vörumerki. Veiðiflugur munu nú bjóða upp á þessar flugulínur sem ódýran valkost fyrir veiðimenn.