Aquanova Sökklína (Super Sink)

Aquanova Super Sink er mjög hraðsökkvandi flugulína sem nota má í ár og stöðuvötn. Línan er framþung og henni er auðvelt að kasta.

5.990kr.

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Aquanova Super Sink sekkur verulega hratt í vatni eða sem nemur 18 cm/sek. Sökklínan hentar best í köldu veðri og miklu vatni. Línan beinsekkur, þ.e. sekkur fyrst og hraðast fremst, næst agninu. Þessi eiginleiki bætir flugustjórnun og auðveldar veiðimanni að ná línunni upp úr vatninu. Kápan er teflonhúðuð til þess að minnka viðnám í lykkjum stangarinnar. Heildarlengd línunnar er 27 metrar. Hún ræður við allar gerðir flugna sökum þyngdar sinnar og uppbyggingu.

Aquanova-línurnar eru framleiddar af kanadíska fyrirtækinu Norhern Sport. Meginstarfsemi Northern Sport hefur falist í framleiðslu á flugulínum sem seldar eru undir merkjum annarra fyrirtækja um allan heim, en minni áhersla hefur verið lögð í sölu á línum undir eigin vörumerki. Veiðiflugur munu nú bjóða upp á þessar flugulínur sem ódýran valkost fyrir veiðimenn.