Aquanova Wind Taper Flotlína

Aquanova Wind Taper er framþung flotlína sem hönnuð er fyrir köst í miklum vindi. Línan nýtist vel í erfiðum aðstæðum og eins þegar ná þarf löngum köstum. Línuna má nota í vatnaveiði og straumvatn, bæði í lax- og silungsveiði.

6.990kr.

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Aquanova Wind Taper fer best með litlum og meðalstórum flugum, bæði hefðbundnum krókum og meðalstórum túpum. Þyngd haussins liggur tiltölulega framarlega í línuhausnum sem gerir veiðimanni auðveldara fyrir að kasta á móti vindi. Þá er einfalt að ná fram löngum köstum þegar svo ber undir.   Kápa línunnar er teflonhúðuð til að minnka viðnám og auka þannig línuhraða í gegnum lykkjur stangarinnar.

Lítið sem ekkert minni er í þessum línum, þ.e. þær kuðlast ekki, jafnvel í mjög köldu veðri. Línan er fáanleg í línuþyngdum #6 – #9 og er heildarlengd hennar 32 metrar.

Aquanova-línurnar eru framleiddar af kanadíska fyrirtækinu Norhern Sport. Meginstarfsemi Northern Sport hefur falist í framleiðslu á flugulínum sem seldar eru undir merkjum annarra fyrirtækja um allan heim, en minni áhersla hefur verið lögð í sölu á línum undir eigin vörumerki. Veiðiflugur munu nú bjóða upp á þessar flugulínur sem ódýran valkost fyrir veiðimenn.