Bakpokar sem henta í stangveiði, skotveiði en ekki síður almenna útivist fást í góðu úrvali hjá Veiðiflugum. Vatnsheldir bakpokar eru fáanlegir í nokkrum stærðum og gerðum auk mittistaska fyrir minni farangur. Veiðiflugur eru dreifingaraðili fjölmargra framleiðanda á Íslandi, s.s. Fishpond sem sérhæfir sig í framleiðslu á töskum og fylgihlutum, Loop sem er eitt fremsta merkið í veiðiheiminum í dag og Guideline sem framleiðir hvaðeina sem tengist fluguveiði. Líttu við í Veiðiflugur á Langholtsvegi 111 og við aðstoðum þig við valið á rétta bakpokanum. Þá má einnig skoða fjölbreytt úrval af bakpokum og öðrum töskum í netversluninni Veidiflugur.is.

Hvað þarf að hafa í huga við val á nýjum bakpoka?

Það er einkum þrennt sem hafa þarf í huga þegar fjárfest er i nýjum bakpoka:

Stærð:

Hve mikið þarf að rúmast í bakpokanum? Ertu að fara í langt ferðalag eða veiðiferð með mikinn farangur eða þarftu aðeins lítinn poka undir það nauðsynlegasta? Bakpokar eru framleiddir í mismunandi stærðum og jafnan talað um að þeir rúmi tiltekinn lítrafjölda.

Eiginleikar:

Hvaða tilgangi mun bakpokinn gegna? Þarftu marga vasa eða festingar? Þarf innihaldið að haldast þurrt? Bakpokar eru fáanlegir í ótal útfærslum – kynntu þér því málið vel.

Gerð:

Það skiptir miklu máli að bakpokinn henti notandanum og er þá gjarnan miðað við lengd búksins, en ekki hæð viðkomandi. Þá þurfa bakpokar til lengri ferðalaga að hafa góðan bak- og axlastuðning.  

  Vatnsheldir bakpokar verða sífellt vinsælli.

Bakpokar í skærum litum

Víða erlendis er útivistarfólk jafnan vel upplýst um mikilvægi þess að bera bakpoka í skærum litum þegar ferðast er fótgangandi fjarri mannabyggðum. Á því er mjög rökrétt skýring sem snýr að sýnileika ef kalla þarf eftir aðstoð. Skærir litir sjást betur í umhverfinu sem auðveldar leitarfólki að finna viðkomandi þegar á þarf að halda. Þeir sem ganga á fjöll eða til rjúpna ættu ávallt að huga að sýnileika, öryggisins vegna.