Patagonia Swiftcurrent Vöðlupakki II

Góður vöðlupakki sem samansendur af Swiftcurrent vöðlunum frá Patagonia og vönduðum vöðluskóm frá Korkers eða Patagonia. Þessar fjölhæfu og léttu öndunarvöðlur má nota sem uppháar vöðlur eða sem mittisvöðlur.

118.900kr.

Patagonia Swiftcurrent Vöðlur

River Ops Vöðluskór

Patagonia Forra Vöðluskór

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Góður vöðlupakki sem samansendur af Swiftcurrent vöðlunum frá Patagonia og vönduðum vöðluskóm frá Korkers eða Patagonia. Efnið í vöðlunum hefur verið þróað undanfarinn áratug og er það nú slitsterkara og þjálla en áður. Breytingin tryggir aukin þægindi og lengri endingu. Þessar fjölhæfu og léttu öndunarvöðlur má nota sem uppháar vöðlur eða sem mittisvöðlur. Á meðal eiginleika er vatnsheldur vasi að innanverðu, vasar á hliðum til að verma hendur, teygjuofinn brjóstvasi og vöðlusokkar sem aðlagaðir eru hvorum fæti.

Framan á vöðlunum er rúmgóður renndur vasi fyrir miðju með vatnsvörðum rennilás. Hann má nota undir flugubox eða ýmis veiðitól. Á hvorri hlið eru fóðraðir vasar til að verma hendur. Að innanverðu er vatnsheldur poki sem velta má fram, hann er ætlaður undir síma og bíllykla. Axlarbönd eru stillt með einu handtaki og má færa efri hlutann frá bringu að mitti. Sú hönnun er einkennismerki Patagonia sem oft getur komið sér vel, sérstaklega á góðviðrisdögum þegar heilar vöðlur eru óþarfar.

River Ops eru einstakir vöðluskór úr smiðju Korkers, hannaðir til að standast gríðarmikla notkun. Þeir eru sérstaklega hugsaðir fyrir þá sem verja mörgum dögum á sumri við veiðar. River Ops eru í raun hinir fullkomnu skór fyrir leiðsögumenn og aðra þá sem kjósa áreiðanleika og stöðuleika. Þeir eru í algjörum sérflokki þegar kemur að þægindum og endingu, en til marks um það fylgir þeim tveggja ára ábyrgð frá kaupdegi. Þessi einstaka ending River Ops skónna næst fram með nýrri tækni sem kallast Exo-Tec™. Skórnir eru ekki saumaðir á hefðbundinn hátt heldur eru þeir mótaðir í framleiðsluferlinu án þess að saumar komi nærri. Efnislög eru samsett með hinni nýju bræðslutækni sem kemur í veg fyrir að álagsfletir trosni upp. En þrátt fyrir að skórinn þoli mikið slit, s.s. vegna grjóts eða kletta, er hann ákaflega sveigjanlegur og hegðar sér eins og hver annar íþróttaskór.

Forra vöðluskórnir eru frá Patagonia. Þeir eru hannaðir í fjölbreytta veiði og framleiddir úr fljótþornandi efnum. Vöðluskórnir eru með Vibram® gúmmísóla sem veitir mikið grip í flestum aðstæðum. Þeir reimast hátt og veita traustan öklastuðning. Táin sérstaklega styrkt og eru reimarnar afar slitsterkar. Stilla má skóna eftir hentugleika, svo stuðningurinn sé eins og hentar hverju sinni.