Stonfo Fly Fluguhnýtingasett

Fullbúið fluguhnýtingasett með hnýtingaþvingu, öflugum verkfærum og skipulögðu hulstri, frábær pakki fyrir þá sem vilja byrja í fluguhnýtingum. Þetta er gæða sett frá Stonfo – einföld notkun og allt á sínum stað.

33.995kr.

Á lager

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Stonfo Fly Tying Kit er heildarlausn fyrir þá sem vilja byrja í fluguhnýtingum með traustum búnaði og góðu skipulagi. Þetta sett inniheldur Flylab hnýtingaþvingu með borðklemmu og 7 vönduð grunnverkfæri sem duga í allt frá þurrflugum yfir í straumflugur.

Hnýtingaþvingan festist tryggilega á borðbrún og heldur krókum örugglega á meðan unnið er. Meðfylgjandi verkfæri eru öll af gæðum sem Stonfo er þekkt fyrir – þar á meðal Bobtec keflishalda með stillanlegri spennu, hnýtingaskæri, dubbingverkfæri, hackle-töng og nál. Öll verkfærin koma í sterku hulstri með mótuðu innvolsi, sem heldur öllu snyrtilegu og öruggu – bæði í geymslu og ferðalögum. Þetta sett hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja ferðasett eða aukasett fyrir veiðiferðina og hnýtingarkvöldin.

Innihald:

  • Flylab hnýtingaþvinga með borðklemmu
  • Beitt hnýtingaskæri
  • Bobtec 1 keflishalda með stillanlegri spennu
  • Þræðari (Bobbin threader)
  • Hnútatól (Finisher)
  • Nál (Bodkin)
  • Hackle töng
  • Dubbingverkfæri (Rotodubbing mini)
  • Leiðbeiningar fyrir þvingu og verkfæri
  • Hulstur með mótuðu innvolsi og glæru loki

Helstu eiginleikar:

  • Allt sem þarf til að byrja í fluguhnýtingum
  • Gæðaverkfæri frá Stonfo – endingargóð og einföld í notkun
  • Skipulagt og meðfærilegt hulstur
  • Hentar bæði byrjendum og sem ferðasett