Single Hand Scandi frá Guideline er fjölhæf flotlína fyrir einhendur. Hún er hönnuð til að auðvelda veltiköst – án þess að fórna fínni framsetningu. Hver lína er sérsniðin að sinni línuþyngd, þannig að léttari útgáfur skila mjúkri þurrfluguframsetningu á meðan þyngri útgáfur ráða vel við straumflugur og laxaflugur. Þrátt fyrir nafnið hentar hún einnig einstaklega vel í hefðbundin fluguköst, með stöðugum línubug og góðri stjórn.
Tæknilegir eiginleikar:
- Sérsniðið keilusnið fyrir hverja línuþyngd
- Þyngdin situr aftarlega í hausnum og mjókkar fram – auðveldar að mynda D-lykkju
- Stuttur aftari hluti og meðhöndlunarhluti gefur jafnvægi og stöðugleika í köstum
- Hvítur haus (vel sýnilegur en styggir síður fisk) og skærgul rennilína
- Hentar fyrir silunga- og laxaflugur – alhliða lína fyrir flestar aðstæður
- Hver lína er merkt, með lykkju á báðum endum
- Framleidd án skaðlegra mýkingarefna
Tæknilýsing:
Línuþyngd | Hauslengd | Hausþyngd | Heildarlengd |
#4 | 8,8 m | 11 g | 30 m |
#5 | 9,4 m | 13 g | 30 m |
#6 | 9,6 m | 15 g | 30 m |
#7 | 10 m | 17 g | 32 m |
#8 | 10,5 m | 19 g | 32 m |