Sealskinz 100% Vatnsheldir Ökklasokkar – All Weather

Vatnsheldi sokkurinn sem varð kveikjan að þróun og framleiðslu Selaskinz varanna. Ökklasokkarnir eru hannaðir til að halda fótunum þurrum í blautum aðstæðum. Rakir og kaldir fætur valda notandanum óþægindum við iðju sína.

7.995kr.

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Fyrsti vatnsheldi sokkurinn

Vatnsheldi sokkurinn sem varð kveikjan að þróun og framleiðslu Selaskinz varanna. Ökklasokkarnir eru hannaðir til að halda fótunum þurrum í blautum aðstæðum. Rakir og kaldir fætur valda notandanum óþægindum við iðju sína. Doða í tám, blöðrur og frostbit má forðast með notkun þessara frábæru vatnsheldu sokka. Þá má nota í fjölbreyttu hitastigi, í rigningu og snjó eða innanundir vöðlur og útiskó.

Framúrskarandi öndunareiginleikar

Vert er að benda á óviðjafnanlega öndun vatnsheldu filmunnar sem hleypir svita og gufu út, en raka og bleytu ekki inn. Þetta skapar notandanum aukin þægindi í krefjandi aðstæðum og hreyfingu sem reynir á þolið.

Tilvaldir í hverskonar útivist

Vatnsheldir sokkar eru heppilegir í aðstæðum þar sem hætta er á að fæturnir blotni. Þeir henta því í gönguferðir, hjólreiðar, fjallgöngu, veiðina eða útivinnuna.

Nýstárleg efni og framleiðsla

Sealskinz notar einstaka þriggja laga uppbyggingu í sokkana með 100% vatnsheldri filmu að utanverðu, en úrvals merino-ull að innanverðu. Ullin veitir mikla hlýju og dregur úr svitamyndun. Ytra byrði sokkanna er úr nælonefni með fjögurra þátta teygju sem tryggir aukin þægindi og meiri hreyfanleika.

Gerðir fyrir þægindi

Sokkarnir eru hannaðir með hnökralausri aðferð til aukinna þæginda. Tásaumar eru flatir og aukinn stuðningur hafður í hæl og við ökkla. Þannig verður upplifun notandans betri með þægindi í fyrirrúmi.

Handsaumaðir og prófaðir

Sérhvert sokkur er handsaumaður í Bretlandi og er vatnsheldni þeirra prófuð áður en þeir fara á markað.