SALAR S4 13′ #8/9

> Kraftmikil og fjölhæf tvíhenda
> Hentar í allar laxveiðiár og allar flugur
> Er í 6 pörtum – frábær í ferðalagið
> Línuþyngd: 34–38 g – vegur aðeins 197 g

219.900kr.

Ekki til á lager

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

SALAR S4 13′ #8/9 Tvíhendustöng

SALAR S4 13′ #8/9 er kjarninn í S4 línunni þegar kemur að laxveiði – klassísk stærð sem sameinar kraft, jafnvægi og fjölhæfni. Þetta er stöng sem hentar í flest allar íslenskar og laxveiðiár, hvort sem veitt er með flotlínu eða sökklínu – í vatnsföllum sem krefjast nákvæmrar stjórnunar.

Með mikinn kraft í skafti og hratt viðbragð er hún sérlega vel til þess fallin að kasta þyngri línum, löngum taumum og stórum flugum. Hún er jafnframt nægilega næm til að veita góða tilfinningu í styttri köstum og fínlegri veiði. Hentar jafnt byrjendum sem reyndum kösturum.

Stöngin er í 6 pörtum og pakkast í 75 cm, sem gerir hana að góðum ferðafélaga. Útlitið er klassískt og fágað, með rauðmöttum stangardúk, samlitum vafningum og útsaumuðum Cordura-hólki. Brons hjólasæti heldur hjólinu stöðugu, og málband áletrað á stöngina er kjörið fyrir þá sem veiða og sleppa með nákvæmni og ábyrgð.

Helstu eiginleikar:

• Kjörin stöng fyrir fjölbreytta laxveiði
• Sterkbyggð með miklum krafti í skafti
• Létt og vel jafnvægisstillt – aðeins 197 g
• Er í 6 pörtum – hentar vel í ferðalög
• Brons hjólasæti og hágæða korkhandfang
• Málband áletrað á stöngina
• Þríhyrndur Cordura-hólkur fylgir – útsaumaður

Tæknilýsing:

• Lengd: 13′ (3,96 m)
• Línuþyngd: #8/9
• Kastþyngd: 34–38 g
• Þyngd stangar: 197 g
• Flutningslengd: 75 cm