Guideline Elevation 12′ #7/8

> Einstaklega létt m.v. línuþyngd
> Frábær í meðalstórar laxveiðiár
> Fer auðveldlega með þyngstu sökklínur
> Vegur 152 gr. – línuþyngd 27-30 gr.

72.900kr.

Á lager

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Elevation stangirnar eru einstaklega léttar meðalhraðar stangir, hannaðar fyrir breiðan hóp veiðimanna. Hönnun og framleiðsla stanganna er á margan hátt framúrstefnuleg en stangarhlutar þeirra eru umtalsvert umhverfisvænni en gengur og gerist. Þetta er sú stefna sem Guideline hefur tekið í átt að heilbrigðari framleiðsluþáttum.

Stangirnar eru framleiddar eins efnislitlar og kostur er án þess að það komið niður á kasteiginleikum eða styrk. Toppurinn er afar næmur en um leið stöðugur og hleðst stöngin með jöfnu átaki niður í skaft. Hraði stangarinnar er þannig heppilegur fyrir þá sem eru að byrja í fluguveiði, en stöngin fyrirgefur vel mistök á kastferlinum. Elevation eru nákvæmar stangir og með þeim er unnt að ná miklum línuhraða. Þessi stangarlína er virkilega athyglisverð og á afar sanngjörnu verði.