SALAR One 6/8

> Einstaklega fallegt fluguhjól
> Hentar einhendum í línuþyngd #6-8
> Vönduð smíð og frábær bremsa
> Vegur 195 gr.

94.900kr.

Á lager

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

SALAR Burgundy eru ný fluguhjól frá Mikael Frödin þar sem klassískar hefðir mæta nýstárlegri verkfræði. Salar One minnsta fluguhjólið í seríunni. Það er fullkomið til notkunar með SALAR 10’ #7/8 einhendunni. Lág þyngd hjólsins gerir það nokkuð fjölhæft, því það má nota á einhendur allt niður í línuþyngd #6. Þrátt fyrir smæð sína er hjólið með sama öfluga og áreiðanlega diskabremsukerfi og önnur hjól frá Frödin.

SALAR hjólin eru úthugsuð og er hvert smáatriði tekið með í reikninginn: allt frá innsigluðu diskabremsukerfi, saltvatnsheldu áli og dropamynduðum bremsuhnappi til glæsilegra vínrauðra hliðarplatna. Þessi útfærsla SALAR hjólanna er önnur kynslóð sinnar tegundar. Reynsla þeirra hefur verið afar góð og hafa þau getið sér gott orð fyrir fallegt útlit og mikinn áreiðanleika. Þau eru sterklega byggð og þola því mikla notkun og alvöru áreynslu. SALAR fluguhjólin eru framleidd í Þýskalandi í samvinnu við Ralf Vosseler og er hvert og eitt þeirra númerað.