Á síðustu tveimur árum hefur Loop þróað þetta frábæra hjól sem sameinar einkum tvennt, þ.e. gæði og hagstætt verð. Hjólið er framleitt úr renndu- og steyptu áli, það er með mattri grárri áferð og skartar einkennismerki Loop, L-inu fyrir miðju. Á hinni hlið hjólsins má lesa út bókstafinn Q, enda ber hjólið nafnið Loop Q.
Bremsubúnaðurinn er úthugsaður, ákaflega þýður og er auk þess algjörlega lokaður. Spólan er V-laga til þess að gera notkun hjólsins liprari en ekki síður til að draga úr línuminni.
Loop Q er fáanlegt í fjórum stærðum: 4/6 fyrir léttar einhendur, 6/8 fyrir einhendur í lax og silung, 7/9 fyrir stærri einhendur og switch-stangir og loks 8/11 fyrir tvíhendur.
Frábær hjól á enn betra verði.
Athugið: auka spólur eru nú fáanlegar í öll Loop Q fluguveiðihjólin.