Patagonia Swiftcurrent Expedition Vöðlupakki III er vel samsettur pakki fyrir veiðimenn sem þurfa búnað sem þolir álag og skilar þægindum yfir langan dag. Swiftcurrent Expedition eru öflugustu vöðlurnar frá Patagonia, hannaðar fyrir erfiðar aðstæður þar sem ending, hreyfigeta og áreiðanleiki skipta miklu máli.
Vöðlurnar eru úr 4-laga H2No™ Performance efni úr endurunnu pólýester. Efri hlutinn er léttari og liprari, en neðri hlutinn er styrktur með þyngra efni til að auka slitþol þar sem mest reynir á. Vatnsfráhrindandi DWR-áferðin er án PFC/PFAS-efna og vöðlurnar eru framleiddar í Fair Trade Certified™ verksmiðju.
Sniðið er endurbætt til að auka hreyfigetu og draga úr óþarfa álagi á sauma. Formsaumaðir fætur, sérstakt klofsnið og fjarlægjanlegir hnépúðar gera vöðlurnar þægilegar í notkun, hvort sem verið er að vaða, ganga eða krjúpa við bakka. Í stærri stærðum hefur neðri hluti fóta verið víkkaður lítillega svo auðveldara sé að hreyfa sig og fara í og úr vöðlunum.
Stillanleg axlabönd með smellum gera kleift að færa efri hlutann niður og nota vöðlurnar sem mittisvöðlur þegar aðstæður leyfa. Secure Stretch™ vöðlubelti og beltislykkjur að framan og aftan tryggja góða aðlögun og halda vöðlunum vel á sínum stað.
Geymslumöguleikar eru vel útfærðir. Að innan er vatnsheldur vasi fyrir verðmæti, auk tveggja teygjanlegra vasa fyrir smáhluti. Að utan er stór brjóstvasi með vatnsfráhrindandi rennilás og fóðraður vasi til að verma hendur. Festingar fyrir veiðitól og þurrkunarlykkja á baki bæta við notagildið.
Sokkarnir eru mótaðir fyrir vinstri og hægri fót og falla vel í vöðluskó. Slitvarnarhlífar við ökklasvæði verja gegn núningi og styrkja vöðlurnar þar sem mest mæðir á. Allt miðar þetta að því að gera vöðlurnar þægilegar, endingargóðar og öruggar í mikilli notkun.
Í pakkanum er val á milli tveggja vöðluskóa. River Ops BOA frá Korkers eru sterkir og stöðugir skór fyrir krefjandi aðstæður. Þeir eru hannaðir fyrir mikla notkun, veita góðan stuðning í grýttu undirlagi og BOA® vírakerfið gerir auðvelt að herða skóna jafnt að fæti.
Patagonia Forra vöðluskórnir eru léttari valkostur sem hentar vel þegar gengið er mikið milli veiðistaða. Yfirbyggingin er úr slitsterku Cordura® nylonneti sem þornar hratt og heldur skónum léttum. Hátt snið við ökkla eykur stöðugleika og vernd, styrkt táhlíf kemur sér vel í grýttu undirlagi og Vibram® Mars sóli með XS Trek gúmmíblöndu veitir gott grip.
Finisher tool - fyrir endahnútinn
Costa Grand Catalina Veiðigleraugu 580G
Guideline Aura Bronze 3/4
Guideline NT11 Fast Full Flex 10' #7
Loon Ergo All Purpose 4“ Hnýtingaskæri
Nám REN 9' #5
Rapala Laxaháfur L
Loop Dry Tactical 15L Bakpoki
Loop ZX 9' #7
Korkers Xtra-Bite Carbide Skrúfur í Vöðluskó
Loop Q 7/9
Loop Z1 Tvíhendupakki 12,4' #7
Stonfo Synt Oval Tape #2
Guideline Neck Gaiter Höfuðhlíf - Dark Mustard
Guideline Multi Grip Cork Handfang 













































