Stealth er úthugsuð mittistaska frá Patagonia sem gerir notandanum kleift að hreyfa sig óhindrað, í vatni og á landi, með þægindin og hentugleikann í fyrirrúmi. Mittistaskan er veruleg létt og er hún framleidd úr vatnsfráhrindandi efnum. Taskan rúmar 11 lítra og er með mörgum hólfum og vösum undir allt það helsta sem þarf við árbakkann. Þá eru á henni þó nokkrir tengipunktar sem koma sér vel s.s. í silungsveiðinni.
Mittistaskan hamlar ekki fluguköstunum og er auðvelt að færa hana fram og aftur um mittið. Stórt rennt hólf að framan er hólfaskipt og getur borið alla helstu aukahluti og flugubox. Einnig er þar vatnsheldur renndur vasi undir t.d. síma, lykla eða annan búnað sem ekki má blotna. Á hliðum töskunnar eru renndir vasar undir smærri hluti sem þurfa að vera næst hendinni. Að auki er rennihólf aftast á töskunni sem er tilvalið fyrir vatnsbrúsa eða önnur drykkjarföng.
Loop 7X 9' #8
Fishpond Thunderhead Yucca Small - Vatnsheld Mittistaska
Patagonia Guidewater Caramel – Mittistaska
Patagonia Guidewater Mittistaska - B. Green
Patagonia Stealth Switch Pack 9L Veiðitaska - R. Green 








