Patagonia River Salt Vöðlujakki (Dömu)

River Salt er virkilega vandaður vöðlujakki frá Patagonia. Hann er hannaður með þarfir veiðikvenna í huga, framleiddur úr fjögurra laga vatnsheldu öndunarefni. Einkennismerki vatnshelds fatnaðar frá fyrirtækinu er hin svonefnda H2No® filma, sem er með einstakri öndun og að fullu vatnsheld.

64.900kr.

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

River Salt vöðlujakkinn frá Patagonia er framleiddur úr fjögurra laga vatnsheldu öndunarefni sem kallast H2No®, sem er einkennismerki vatnshelds fatnaðar frá fyrirtækinu. Jakkinn er hannaður fyrir konur og er afar slitsterkur og endingargóður, enda hannaður til að standast álagið í hverskonar aðstæðum.

Vöðlujakkinn er með vatnsheldum YKK-rennilás, en að framan eru tveir brjóstvasar undir fluguboxin með vatnsvörðum rennilásum. Á hvorri hlið eru fóðraðir vasar til að hvíla eða verma hendur. Að innanverðu er netapoki sem nýtist fyrir húfu, vettlinga eða flugnanet, auk rennds vasa undir síma eða bíllykla. Sérstakar festingar eru framan á jakkanum sem nýtast til að hengja taumaklippur, losunartöng eða önnur veiðitól. D-lykkja er á baki sem hugsuð er fyrir veiðiháf.

Hettuna má þrengja með einu handtaki og er hún hönnuð þannig að hún haldist á sínum stað og skýli andlitinu í miklum vindi. Ermar jakkans eru með úlnliðsböndum til að varna því að vatn leiti upp hendurnar. Það kemur sér vel þegar fiski er sleppt, en ekki síður í mikilli rigningu. Jakkann má þrengja í mitti eftir aðstæðum hverju sinni.