Þessi trausta og stóra 61 lítra taska frá Patagonia gleypir vel flest sem þarf í veiðiferðina eða ferðalagið. Taskan er með stórt toppop með hálfstífri byggingu sem gerir það að verkum að hún helst opin þegar þörf er á. Renndur hliðarvasi er á töskunni utanverðri sem nýtist vel undir smáhluti.
Taskan er framleidd í Fair Trade vottaðri verksmiðju, sem þýðir að fólkið sem framleiddi hana fékk mannsæmandi (e. premium) laun fyrir.