Stórkostlegt hjól sem hefur allt sem til þarf. Nautilus NV-G 7/8 hentar fyrir tvíhendur sem eru 12-13 fet að lengd, en ekki síður lengri switch-stangir. Á hjólið rúmast um 150 metrar af undirlínu ef miðað er við 30 pund að styrk.
Nautilus NV-G fluguhjólin eru framleidd úr renndu áli og státa af hinu margverðlaunaða NV CCF diskabremsukerfi. G-ið í nafni hjólsins stendur fyrir Giga Arbor sem er notað um þau hjól sem hafa meira þvermál en hefðbundin breiðkjarnahjól. NV-G hjólin ná inn slaka línunnar á meiri hraða en nokkurt annað fluguveiðihjól á markaðnum. Rákir eru ristar í botn spólunnar og mynda þær loftrými svo súrefni eigi þar greiða leið. Með því móti þornar undirlínan mun fyrr en ella auk þess sem dregið úr hættu á tæringu vegna raka frá undirlínunni. Nautilus NV-G hjólin fást í fjórum stærðum.
Þau eru fá fluguveiðihjólin sem standast samanburð við NV-G frá Nautilus enda er hönnunin og gæðin á heimsmælikvarða. Nautilus hjólin eru ávöxtur 180 ára gamallar fjölskylduhefðar byggðri á nýsköpun og hugvitssemi.