Mjög flottur fluguveiðipakki sem inniheldur Loop ZT sexhluta tvíhendu, Loop Evotec G5 fluguveiðihjól, undirlínu og Hofsá flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
Þessi pakki er sérvalinn fyrir laxveiði í stærri ám. Stöngin er gríðarlega öflug og býður upp á nægt afl til að kasta stærri flugum við krefjandi aðstæður. Þrátt fyrir mikla burði heldur hún nákvæmni og býður upp á framúrskarandi línustjórnun – hvort sem kastað er langt eða stutt, með smáflugum eða túpum, í logni eða vindi.
Loop ZT stangirnar byggja á sömu hugmyndafræði og Loop Z1, en eru í sex hlutum í stað fjögurra – T-ið stendur fyrir „travel“. Þær eru sérstaklega ætlaðar veiðifólki sem ferðast á milli landa eða landshluta og vilja ekki gera málamiðlanir í frammistöðu. Þær eru meðalhraðar (medium fast action), með djúpri hleðslu, miklu afli og einstakri næmni.
Z stangirnar eru bæði sterkari og léttari en Cross S1, þar sem þær eru smíðaðar með nýjustu nano resin tækni og 40–45 tonna nano graphene koltrefjum. Þær skila betri kastvegalengd og viðbragði, án þess að fórna mýkt eða stjórn. Hver stöng er með handfang úr fyrsta flokks korki, sérhönnuðu fisléttu hjólasæti og keramikfóðruðum títan-lykkjum – allt valið með endingu og árangur í huga.
Stönginni fylgir Loop Evotec G5, öflugur fullfrágenginn hjólbúnaður í sinni fimmtu kynslóð. Hjólið er með lokað Power Matrix diskabremsukerfi sem skilar áreiðanlegu og jöfnu átaki í átökum við stóra fiska. Það er smíðað úr renndu áli með ryðfríum íhlutum, og með endurbættum bremsu- og spóluhnöppum sem tryggja gott grip og nákvæma stjórn.
Á hjólinu er undirlína og Hofsá flotlína – samfelld og vönduð tvíhendulína sem þróuð er sérstaklega fyrir íslenskar laxveiðiár. Hún er lítillega yfir línukvarða í þyngd og hleður stöngina auðveldlega, bæði fyrir yfirhandar- og veltiköst. Hún leggst mjúklega á vatnið og virkar einstaklega vel við krefjandi aðstæður – t.d. í logni, lágu vatni eða mikilli birtu. Línan fer vel með allar gerðir tauma, hvort sem veitt er með smáum flugum eða þyngri túpum. Skothausinn er í látlausum grænum lit sem truflar síður fisk, en rennilínan í skærum appelsínugulum lit sem tryggir góða yfirsýn í vatni.
Loop ZT tvíhendupakkinn er framúrskarandi val fyrir þau sem sækja í öflug tæki, alhliða notkun og örugga frammistöðu – jafnt heima sem erlendis.
Fishpond Thunderhead Eco Sling Shale - Axlartaska
Guideline The Snake Derhúfa - Caramel
Fishpond Thunderhead Yucca Small - Vatnsheld Mittistaska
Echo Lift 8' #4
Tacky Original Flugubox Orange
Frödin Túpuveski – Medium ‘X‘
Fishpond Blizzard Cooler Sand - Kælitaska
Patagonia Fly Catcher Fitz I. Green Derhúfa
Tacky Daypack Flugubox
Áhaldaspóla
Guideline WP Slit Foam Swing Leaf - Flugubox
Loon Rouge Skæratöng
Stonfo Þræðari
Loon Fast Cast Tool - Línuhreinsunartæki
Guideline Elevation Einhendupakki 9,9‘ #7
Patagonia Fly Catcher Hat W. Stone Derhúfa
Guideline Elevation 9,9' #6
Guideline LPX Nymph 10,8' #3
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9,9' #3
Costa Loop Hálsól
Losunartöng
Guideline Embrace Tvíhendupakki 14' #9/10 



















