Loop Z1 Einhendupakki 10′ #5

> Hönnuð í vatnaveiði og stærri ár
> Býður upp á einstaka línustjórnun
> Pakkanum fylgir Evotec G5 fluguhjól og Opti Drift flotlína
> Stöngin vegur aðeins 101 gr.

169.900kr.

Vinsamlega veldu inndrátt fluguhjólsins:

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Einstaklega vandaður fluguveiðipakki sem inniheldur Loop Z1 einhendu, Loop Evotec G5 fluguveiðihjól, undirlínu og Loop Opti Drift flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinasamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.

Fluguveiðipakkinn er hannaður í stærri silungsveiðiár og stöðuvötn. Stöngin býður upp á einstaka línustjórnun og kastar púpum jafnt sem straumflugum. Hún ræður við langa og granna tauma og nýtist m.a. vel í andstreymisveiði. Með henni má eiga við stóra fiska á agnarsmáa króka. Flugustöngin er meðalhröð (e. medium fast action) og hentar á lengra sem skemmra færi, jafnt með yfir- og undirhandarköstum.

Loop Z1 flugustangirnar eru umtalsvert léttari og sterkari en forveri þeirra Cross S1, þökk sé nýrri nano resin tækni sem er umtalsvert betri en áður. Þá er hver stöng framleidd með nano graphene koltrefjum sem tryggir góða næmni, en um leið mikið afl. Z stangirnar eru öflugustu hringlaga stangir sem Loop hefur nokkru sinni framleitt. Stangirnar eru með þægilegt handfang sem framleitt er úr korki í hæsta gæðastuðli, sérhannað fislétt hjólasæti og keramikfóðraðar lykkjur úr títaníum.

Stönginni fylgir Loop Evotec G5 sem er fimmta kynslóðin af þeim frábæru fluguveiðihjólum. Þau eru þekkt fyrir stílhreint útlit og einstök gæði. Evotec G5 er með „Power Matrix Drag System“ sem er einn áreiðanlegasti bremsubúnaður sem fyrirfinnst í veiðihjólum. Það kerfi hefur Loop notað til margra ára enda fyrir löngu sannað ágæti sitt. Bremsan tryggir jafnt áreynslulaust átak og veitir þannig veiðimanni mikið forskot. Búnaðurinn er algjörlega lokaður og vatnsheldur.

Hjólið er framleitt úr renndu áli en aðrir hlutir þess eru m.a. gerðir úr áli og ryðfríu stáli. Útlit þess er virkilega fallegt og fær málmgrár liturinn að njóta sín. Á því eru nýir endurhannaðir bremsuhnappar sem veita notandanum betri stjórn á bremsubúnaðinum. Þá hefur spóluhnappinum verið breytt þannig að hann auki heildarstyrk rammans og veiti betra grip þegar skipt er um spólur.

Á hjólinu er undirlína og Loop Opti Drift flotlína. Kaupendur hafa einnig val um að velja aðra línu, hvort heldur flot- eða sökklínu. Opti Drift er hönnuð til að hámarka skilvirkni flugukastsins og framsetningu flugunnar. Hún er afbragðsgóð við hverskonar aðstæður, í logni sem vindi, en nýtur sín ekki síður vel þar sem pláss fyrir bakkastið er takmarkað. Línan er með langri bak-taperingu, þ.e. þyngdin færist aftar á lengra svæði, en sá eiginleiki auðveldar veiðimönnum að menda línuna í straumvatni, auk þess sem línan leggst mun betur á vatnsflötinn.

Opti Drift er tvílit sem hjálpar til við línustjórnun í vatni, en ekki síður til að auðvelda veiðimanni að finna hleðslupunkt stangarinnar. Línan hleður stöngina mjög auðveldlega og rennur ákaflega mjúklega í gegnum lykkjur hennar.

Loop Z1 stangarpakkinn er sannarlega vandaður og hentar öllum þeim sem kjósa gæði og áreiðanleika.