Loop ZT Tvíhendupakki 13′ #7

> Hentar í meðalstórar laxveiðiár
> Djúp en öflug hleðsla
> Frábær með hefðbundinni flotlínu
> Pakkanum fylgir Evotec G5 fluguhjól og 3D+ skothaus

231.900kr.

Vinsamlega veldu inndrátt fluguhjólsins:

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Mjög flottur fluguveiðipakki sem inniheldur Loop ZT 6-hluta tvíhendu, Loop Evotec G5 fluguveiðihjól, undirlínu, Loop SDS rennilínu og 3D+ skothaus eða aðra sambærilega línu. Vinasamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.

Þessi tvíhendupakki hentar fyrst og fremst í meðalstórar laxveiðiár. Stöngin er með djúpa en öfluga hleðslu og er einkar nett og skemmtileg í fiski. Hún vinnur einstaklega vel með flotlínu og löngum frammjókkandi taumum.

Loop ZT tvíhendurnar eru byggðar á sömu hugmyndafræði og Loop Z1, en í stað þess að vera í fjórum hlutum eru þær í sex hlutum. T-ið stendur því fyrir travel, en stangirnar eru einkum hugsaðar fyrir þau sem ferðast á milli landa. Loop ZT eru fáanlegar í fjölbreyttu úrvali sem henta við ólíkar aðstæður og veiðisvæði. Stangirnar eru einkar nákvæmar, fisléttar og veita afbragðs línustjórnun. Þær eru meðalhraðar (e. medium fast action) með djúpri hleðslu og ótrúlegu afli.

Loop Z stangirnar eru umtalsvert léttari og sterkari en forveri þeirra, þökk sé nýrri nano resin tækni. Þær eru um leið öflugri en Cross S1 stangirnar og ná enn meiri kastvegalengd. Sérhver stöng er framleidd með 40-45 tonna nano graphene koltrefjum sem tryggir góða næmni, en um leið mikið afl. Í raun eru Z stangirnar öflugustu hringlaga stangir sem Loop hefur nokkru sinni framleitt. Hver stöng er með þægilegt handfang sem framleitt er úr korki í hæsta gæðastuðli, sérhannað fislétt hjólasæti og keramikfóðraðar lykkjur úr títaníum.

Stönginni fylgir Loop Evotec G5 sem er fimmta kynslóðin af þeim frábæru fluguveiðihjólum. Þau eru þekkt fyrir stílhreint útlit og einstök gæði. Evotec G5 er með „Power Matrix Drag System“ sem er einn áreiðanlegasti bremsubúnaður sem fyrirfinnst í veiðihjólum. Það kerfi hefur Loop notað til margra ára enda fyrir löngu sannað ágæti sitt. Bremsan tryggir jafnt áreynslulaust átak og veitir þannig veiðimanni mikið forskot. Búnaðurinn er algjörlega lokaður og vatnsheldur.

Hjólið er framleitt úr renndu áli en aðrir hlutir þess eru m.a. gerðir úr áli og ryðfríu stáli. Útlit þess er virkilega fallegt og fær málmgrár liturinn að njóta sín. Á því eru nýir endurhannaðir bremsuhnappar sem veita notandanum betri stjórn á bremsubúnaðinum. Þá hefur spóluhnappinum verið breytt þannig að hann auki heildarstyrk rammans og veiti betra grip þegar skipt er um spólur.

Á hjólinu er undirlína, Loop SDS rennilína og 3D+ skothaus. Kaupendur hafa einnig val um að velja aðra línu, hvort heldur flot- eða sökklínu. Skothausinn er tilvalinn fyrir þá veiðimenn sem nota veltiköst meira en hefðbundin yfirhandarköst. Á báðum endum eru grannar húðaðar lykkjur sem eru styrktar sérstaklega. 3D+ skothausinn er með lágteygjukjarna, en teygja hans nemur aðeins um 6%. Kjarninn er á sama tíma einstaklega traustur, eða því sem nemur 32-42 pundum að styrk. 3D+ skothausinn býður upp á nákvæma og fínlega framsetningu. Hann kastar öllum flugugerðum og stærðum og fara sérstaklega vel með löngum frammjókkandi taumum.

Loop ZT tvíhendupakkinn er samsettur til notkunar innanland sem utan. Þetta er tilvalinn pakki fyrir þau sem ferðast á milli landa og gera ríkar kröfur um gæði og áreiðanleika.