Kaitum XT Vöðlupakki III er vel samsettur pakki fyrir veiðimenn sem leggja áherslu á þægindi og hreyfigetu. Vöðlurnar eru framleiddar úr 3-laga Bluesign-vottuðu nælonefni og eru fætur saumalausir að innanverðu til að tryggja lengri endingu. Ofarlega á vöðlunum er stór fóðraður vasi til að verma hendur og fyrir framan hann er rúmgóður vasi með rennilás fyrir veiðidót og flugubox. Að innanverðu er útfellanlegur renndur vasi sem nýtist undir smáhluti eins og síma eða lykla.
Belti og axlarbönd eru úr teygjanlegu efni og auðvelt að stilla eftir þörfum. Aftan á vöðlunum er lykkja fyrir vöðlubeltið sem býður upp á tvennskonar staðsetningu. Sokkarnir eru þægilegir og sandhlífar með krók tryggja að þær haldist vel yfir vöðluskónum. Vöðlurnar eru framleiddar með umhverfissjónarmið í huga og eru efni þeirra Bluesign® vottuð.
Korkers Stealth Sneaker vöðluskórnir eru léttir og liprir skór sem henta vel fyrir þá sem ganga mikið við veiðar. Þeir eru úr slitsterku efni sem þornar hratt og dregur ekki í sig vatn. Kling-On Rock™ sóli veitir gott grip á bæði blautu og þurru undirlagi, og hægt er að bæta við nöglum til að auka stöðugleika við erfiðari aðstæður. Skórnir eru með hefðbundnu reimakerfi og innra frárennsliskerfi sem hjálpar til við að losa vatn fljótt úr þeim. Lágur prófíll og létt uppbygging tryggja góða hreyfigetu og þægindi yfir lengri vegalengdir.
Nám REN 11,6' #6
Loop 7X 11,6' #7 

























